Heiða Kristín Helgadóttir mun hætta sem stjórnarformaður Bjartrar framtíðar og hætta afskiptum af stjórnmálum um sinn í upphafi næsta árs. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem hún birti á Facebook rétt í þessu.
Heiða Kristín kom að stofnun Besta flokksins fyrir sveitastjórnarkosningarnar 2010 og síðar Bjartrar framtíðar. Hún var um tíma aðstoðarmaður Jóns Gnarr borgarstjóra, framkvæmdastjóri borgarstjórnarflokks Besta flokksins, varaformaður Besta flokksins, stjórnarformaður og framkvæmdastjóri Bjartrar framtíðar. Hún bauð sig fram fyrir hönd Bjartrar framtíðar í síðustu alþingiskosningum en náði ekki kjöri. Hún er varaþingmaður flokksins í dag.
Hún hefur verið á meðal áhrifamestu kvenna í íslenskum stjórnmálum undanfarin ár.
Yfirlýsing Heiðu Kristínar:
„Á síðastliðnum fimm árum hef ég átt þeirri gæfu að fagna að eiga stóran þátt í því að búa til tvo stönduga stjórnmálaflokka, Besta flokkinn og Bjarta framtíð, og þannig stuðlað að tímabærum breytingum sem ég vona innilega að munu hafa jákvæð áhrif til lengri tíma. Á þessum tímapunkti finnst mér rétt að sleppa takinu, hleypa öðrum að og freista þess að hafa áhrif á samfélagið með öðrum hætti. Ég hef tekið ákvörðun um að láta af stjórnarformennsku í Bjartri framtíð í upphafi nýs árs og hvíla dagleg afskipti af stjórnmálum um sinn.
Ég er sátt og stolt af því sem ég hef áorkað, en á sama tíma meðvituð um að þörfin fyrir að opna samfélagið upp og færa það nær nútímanum er ótvíræð. Ég hlakka til að takast á við það verkefni frá nýjum sjónarhól á komandi árum."