Heiðrún ráðin framkvæmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja

Katrín Júlíusdóttir hætti skyndilega sem framkvæmdastjóri SFF um síðustu mánaðamót. Nú hefur nýr framkvæmdastjóri verið ráðinn og hún hefur þegar hafið störf.

Heiðrún Jónsdóttir.
Heiðrún Jónsdóttir.
Auglýsing

Heiðrún Jóns­dótt­ir, lög­maður hefur verið ráðin sem fram­kvæmda­stjóri Sam­taka fjár­mála­fyr­ir­tækja (SFF). Hún hefur þegar hafið störf. 

Heiðrún tekur við starf­inu af Katrínu Júl­í­us­dótt­ur, fyrr­ver­andi fjár­mála­ráð­herra og vara­for­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, sem til­kynnti í lok ágúst að hún hefði sagt starfi sínu lausu og upp­sögn hennar tók gildi 1. sept­em­ber. Katrín hafði verið fram­kvæmda­stjóri SFF síðan 2016. 

Innan Sam­taka fjár­mála­fyr­ir­tækja eru 25 aðild­ar­fé­lög. Þar starfa nú sex starfs­menn. Stjórn­ar­for­maður er Lilja Björk Ein­ars­dótt­ir, banka­stjóri Lands­bank­ans.

Auglýsing
Í til­kynn­ingu segir að Heiðrún hafi starfað sem lög­maður í áraraðir og hafi víð­tæka stjórn­un­a­reynslu úr atvinnu­líf­inu. „Hún var í stjórn Íslands­banka frá 2016 síð­ast sem vara­for­maður bank­ans en áður var hún stjórn­ar­for­maður hjá Íslenskum verð­bréfum 2014-2016 og hjá Gildi líf­eyr­is­sjóði 2008-2014, síð­ast sem stjórn­ar­for­mað­ur. Þá hefur hún m.a. setið í stjórnum Reg­ins, Icelanda­ir, Sím­ans, Olís, Norð­lenska, Reikni­stofu bank­anna, Ístaks, Arion verð­bréfa­vörslu og Royal Arctic Line á Græn­landi. Hún var fram­kvæmda­stjóri hjá Eim­skip á árunum 2006-2012 þar sem hún stýrði m.a. starfs­manna­málum og mark­aðs­mál­um. Þá var hún fram­kvæmda­stjóri lög­manns­stof­unnar Lex á árunum 2003-2005, upp­lýs­inga­full­trúi Sím­ans 2001-2003 og starfs­manna­stjóri og lög­fræð­ingur hjá KEA 1998-2001. Þá hefur hún kennt við laga­deildir Háskól­ans í Reykja­vík og Háskóla Íslands og víð­ar.“

Heiðrún seg­ist hlakka til að taka til starfa hjá SFF. „Innan aðild­ar­fé­lag­anna starfar öfl­ug­ur, fjöl­breyttur og kraft­mik­ill hópur sem ég hlakka til að starfa með. Verk­efnin eru fjöl­breytt og afar áhuga­verð. Fjár­mála­fyr­ir­tæki gegna mik­il­vægu hlut­verki í íslensku sam­fé­lagi og mark­að­ur­inn er síbreyti­legur og fjöl­breytt­ur. “

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent