Stýrivextir hækka í níunda skiptið í röð – Nú upp í 5,75 prósent

Stýrivextir hafa verið hækkaðir upp í 5,75 prósent. Greiðslubyrði margra heimila mun fyrir vikið þyngjast. Ákvarðanir í atvinnulífi, á vinnumarkaði og í ríkisfjármálum munu skipta miklu um þróun vaxta á næstu misserum, að sögn peningastefnunefndar.

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri er formaður peningastefnunefndar.
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri er formaður peningastefnunefndar.
Auglýsing

Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands hefur ákveðið að hækka stýri­vexti um 0,25 pró­sentu­stig, og upp í 5,75 pró­sent. Þar með hafa stýri­vext­ir, sem ákvarða fjár­magns­kostnað heim­ila og fyr­ir­tækja, verið hækk­aðir við síð­ustu níu vaxta­á­kvarð­anir nefnd­ar­inn­ar, en þeir voru 0,75 pró­sent í maí í fyrra. 

Hækkun stýri­vaxta skilar sér í hækkun á afborg­unum óverð­tryggðra lána sem eru með breyti­lega vexti. Í nýjasta Fjár­mála­stöð­ug­leika­riti Seðla­banka Íslands kemur fram að ​​um 28 pró­sent útistand­andi fast­eigna­lána eru óverð­tryggð og með breyti­legum vöxt­um. Sam­an­lögð upp­hæð þeirra eru á sjö­unda hund­rað millj­arða króna. Vaxta­byrði slíkra lána hefur þegar hækkað veru­lega. 

Í rit­inu er nefnt að vegnir með­al­vextir nýrra íbúða­lána sem veitt voru af bönk­unum í júlí 2021 voru 3,7 pró­sent en ári síðar voru þeir komnir upp í 6,6 pró­sent. Fyrir 40 millj­óna króna óverð­tryggt jafn­greiðslu­lán til 40 ára á breyti­legum vöxtum felur slík vaxta­hækkun í sér rúm­lega 77 þús­und króna hækkun á mán­að­ar­legri greiðslu­byrði eða sem sam­svarar tæpum 48 pró­sent af upp­haf­legri greiðslu­byrði láns­ins.“

Óverð­tryggðir vextir stóru bank­anna þriggja, sem halda á 72 pró­sent af útistand­andi íbúð­ar­lán­um, hafa ekki verið jafn háir og þeir eru nú síðan 2015.

Auglýsing
Þá stytt­ist í end­ur­skoðun á vaxta­kjörum fjölda óverð­tryggðra lána sem veitt voru á föstum vöxtum til til­tek­ins tíma, en alls verða vextir á lánum upp á 340 millj­arða króna end­ur­skoð­aðir á árunum 2023 og 2024 og vextir á lánum upp á 250 millj­arða króna koma til end­ur­skoð­unar árið 2025. Þorri þeirra lána eru óverð­tryggð.

Ákvarð­anir í atvinnu­lífi, á vinnu­mark­aði og í rík­is­fjár­málum skipta máli

Í yfir­lýs­ingu Pen­inga­stefnu­nefndar segir að vís­bend­ingar séu um að vaxta­hækk­anir und­an­farin miss­eri hafi hægt á vexti almennrar eft­ir­spurnar og umsvifum á hús­næð­is­mark­aði. Verð­bólga mæld­ist 9,3 pró­sent í sept­em­ber og hefur hjaðnað um 0,6 pró­sentu­stig frá ágúst­fundi pen­inga­stefnu­nefnd­ar. „Und­ir­liggj­andi verð­bólga jókst hins vegar milli funda. Þá eru vís­bend­ingar um að verð­bólgu­vænt­ingar séu farnar að lækka á ný þótt þær séu enn yfir verð­bólgu­mark­miði bank­ans.“

Sam­kvæmt bráða­birgða­tölum þjóð­hags­reikn­inga var 6,8 pró­sent hag­vöxtur á fyrri hluta þessa árs. „Eft­ir­spurn á þriðja fjórð­ungi árs­ins virð­ist hafa verið kröftug en útlit er fyrir að heldur hægi á umsvifum eftir því sem líður á vet­ur­inn. Nýlegar vís­bend­ingar af vinnu­mark­aði benda jafn­framt til þess að spenna í þjóð­ar­bú­skapnum hafi náð hámarki. Þá hafa alþjóð­legar efna­hags­horfur versnað og óvissa auk­ist sem kann að leiða til þess að hraðar dragi úr inn­lendri eft­ir­spurn en áður var gert ráð fyr­ir.“

Pen­inga­stefnu­nefnd segir að hún muni áfram tryggja að taum­hald pen­inga­stefn­unnar sé nægj­an­legt til að verð­bólga hjaðni í mark­mið innan ásætt­an­legs tíma. „Pen­inga­stefnan mun á næst­unni ráð­ast af þróun efna­hags­um­svifa, verð­bólgu og verð­bólgu­vænt­inga. Ákvarð­anir í atvinnu­lífi, á vinnu­mark­aði og í rík­is­fjár­málum munu skipta miklu um þróun vaxta á næstu miss­er­um.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent