Heildarafli íslenskra fiskiskipa var um 75 þúsund tonn í apríl 2015, sem er 28 þúsund tonnum minni afli en í apríl 2014. Munar þar mestu um minni afla kolmunna og þorsks. Kolmunnaaflinn dróst saman um tæp 40 prósent og þorskaflinn um rúm 20 prósent samanborið við apríl 2014, samkvæmt upplýsingum Hagstofu Íslands.
Aflinn í apríl, metinn á föstu verði, var 20,2 prósent minni en í aprílmánuði 2014. Á síðustu 12 mánuðum hefur aflinn minnkað um 2,4 prósent, sé hann metinn á föstu verði.
Auglýsing