Heimilin enn viðkvæm fyrir óvæntri verðbólgu og vaxtahækkunum

Þrátt fyrir að verðtryggðum lánum hafi fækkað á undanförnum árum hafa óvænt verðbólguskot enn töluverð áhrif á skuldastöðu heimila, sérstaklega ef þeim fylgja vaxtahækkanir.

húsnæði
Auglýsing

Óvænt aukn­ing verð­bólgu um eina pró­sentu gæti haft meiri áhrif á lána­greiðslur heim­ila núna en fyrir níu árum síðan ef verð­bólgu­skotið leiðir til jafn­mik­illa vaxta­hækk­ana, þar sem skuld­setn­ing heim­ila hefur auk­ist. Þetta kemur fram þegar tölur um hús­næð­is­lán heim­ila eru bornar saman við verð­hækk­anir á fast­eigna­mark­aðnum og launa­þró­un.

Minna af verð­tryggðum lánum

Sam­kvæmt nýj­ustu tölum úr efna­hags­reikn­ingum banka­kerf­is­ins og líf­eyr­is­sjóða nam heild­ar­virði verð­tryggðra hús­næð­is­lána um 906 millj­örðum króna í nóv­em­ber. Á sama tíma nam heild­ar­virði óverð­tryggðra lána 1.278 millj­örðum króna.

Hlut­falls­legt vægi verð­tryggðra lána heim­il­anna hefur minnkað tölu­vert á síð­ustu árum, eða úr 60 pró­sentum allra útistand­andi lána í lok árs 2018 niður í 30 pró­sent. Hins vegar er þessi lækkun aðal­lega til­komin vegna auk­innar lán­töku með óverð­tryggðum lán­um, en heild­ar­virði verð­tryggðra lána dróst ein­ungis saman um tíu pró­sent á tíma­bil­inu.

Auglýsing

Sam­hliða sam­drætt­inum í verð­tryggðum lánum hefur kostn­að­ur­inn sem óvænt verð­bólgu­skot veldur heim­ilum minnkað á síð­ustu árum. Slíkum verð­bólgu­skotum fylgja þó venju­lega stýri­vaxta­hækk­anir hjá Seðla­bank­an­um, sem gætu leitt til hærri vaxta á þeim hús­næð­is­lánum sem eru á breyti­legum vöxt­um. Þar sem lán­taka heim­ila hefur auk­ist á síð­ustu miss­erum eru heim­ilin nú við­kvæm­ari fyrir skörpum stýri­vaxta­hækk­unum en þau voru áður.

Heim­ilin næm fyrir vaxta­hækk­unum

Verð­tryggð lán gefur lán­tak­endum tæki­færi á að takast á við verð­bólgu með meiri fram­tíð­ar­greiðsl­um, án þess að hún hafi mikil áhrif á núver­andi greiðslu­byrði. Upp­safn­aðar greiðslur aukast hins vegar á slíkum lánum þegar verð­lag hækkar óvænt.

Myndin hér að neðan sýnir vísi­tölu heild­ar­greiðslna heim­ila á hús­næð­is­lánum ef verð­bólgan verður eitt pró­sent umfram spár. Hún byggir á virði útistand­andi lána banka, spari­sjóða og líf­eyr­is­sjóða til heim­ila og tekur einnig til­lit til hækk­unar launa­vísi­tölu Hag­stofu á sama tíma. Gert er ráð fyrir að rúmur helm­ingur allra lána árið 2013 hafi verið á föstum vöxtum og að heim­ili taki að með­al­tali lán fyrir 25 millj­ónir króna..

Mynd: Kjarninn. Heimild: Seðlabankinn og Hagstofa.

Eins og sést hefði óvænt aukn­ing verð­bólgu nú 20 pró­sent minni áhrif á heild­ar­greiðslur heim­il­anna en það gerði í árs­byrjun 2013, leiði verð­bólgan ekki til vaxta­hækk­ana. Sú er hins vegar venju­lega ekki raun­in, þar sem Seðla­bank­inn notar vaxta­hækk­anir til að halda verð­bólg­unni innan lög­bund­inna marka.

Ef vextir á hús­næð­is­lánum hækka ein­ungis um hálft pró­sentu­stig í kjöl­far verð­bólgu­skots­ins yrðu áhrif þess á heild­ar­greiðslur heim­il­anna jafn­mikil í ár og þau hefðu verið fyrir níu árum síð­an. Hins veg­ar, ef vext­irnir hækka um eitt pró­sent bæru heim­ilin nú fjórð­ungi þyngri byrðar en þau hefðu áður gert.

Athuga­semd rit­stjórnar kl: 15:54: Í fyrri útgáfu frétt­ar­innar var ekki tekið nægi­lega skýrt fram að um heild­ar­greiðslur lána væri að ræða. Fréttin hefur verið upp­færð í sam­ræmi við það.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent