Sækja um leyfi fyrir bóluefni fyrir börn á aldrinum sex mánaða til fimm ára

Pfizer og BioNTech hafa sótt um leyfi fyrir bóluefni fyrir börn á aldrinum 6 mánaða til fimm ára gegn COVID-19.

Bólusetning barna fimm ára og yngri gæti hafist í Bandaríkjunum síðar í þessum mánuði.
Bólusetning barna fimm ára og yngri gæti hafist í Bandaríkjunum síðar í þessum mánuði.
Auglýsing

Banda­ríski lyfj­aris­inn Pfizer og þýska líf­tækni­fyr­ir­tækið BioNTech sóttu í gær um mark­aðs­leyfi fyrir bólu­efni gegn COVID-19 fyrir börn fimm ára og yngri og allt niður í hálfs árs göm­ul. Verði það sam­þykkt gæti bólu­setn­ing barna undir 5 ára haf­ist í Banda­ríkj­unum í lok febr­úar eða byrjun mars.

Lyfja- og mat­væla­eft­ir­lit Banda­ríkj­anna (FDA) hvatti fyr­ir­tækin til að skila umsókn um leyfið sem fyrst, sem verður að telj­ast nokkuð óvana­legt. Rök FDA byggja á að stemma þurfi stigu við ómíkron-af­briðgð­inu hjá börn­um. Um 19 millj­ónir barna til­heyra þessum yngsta ald­urs­hópi í Banda­ríkj­un­um. 1,6 milljón barna undir fjög­urra ára hafa smit­ast af veirunni, 12 börn undir fimm ára hafa lát­ist

Auglýsing

Sam­tök barna­lækna í Banda­ríkj­unum segja for­eldra barna undir fimm ára búa við „afar krefj­andi aðstæður á þessu stigi heims­far­ald­urs­ins“. Mark Del Monte, for­maður samt­kanna, seg­ist vel skilja óþreygju­fulla for­eldra. „Við bíðum eftir gögn­unum og höldum áfram að fara eftir vís­ind­un­um,“ segir hann.

­Leyf­is­beiðnin byggir á bólu­setn­ingu í tveimur skömmtum en rann­sóknir standa yfir á virkni þriðja skammts­ins. Rann­sóknir á bólu­efni fyrir þennan ald­urs­hóp hafa staðið yfir um tíma og um miðjan des­em­ber greindu Pfizer og BioNTech frá því að börn á aldr­inum sex mán­aða til tveggja ára sem fengu tvo skammta af bólu­efni með um tíunda hluta af því magni sem full­orðnum er gef­inn hafa myndað jafn mikið ónæmi og ung­menni á aldr­inum 16-25 ára. Börn eldri en tveggja ára og til fjög­urra ára sýndu ekki eins mikla svör­un.

Fyr­ir­tækin ákváðu samt sem áður sækja um leyfi til að stemma stigu við útbreiðslu ómíkron-af­brigð­is­ins. Ef rann­sókna um virkni þriðja skammts­ins er beðið gæti leyfi fyrir ald­urs­hóp­inn taf­ist fram á vor. Kathrin Jan­sen, yfir­maður bólu­setn­inga­rann­sókna hjá Pfiz­er, segir að stefnan sé samt sem áður sett á að sækja um leyfi fyrir þriðja skammt­inum af bólu­efni fyrir börn í þessum yngsta ald­urs­hópi.

Ef leyfið verður sam­þykkt verður annar skammt­ur­inn gef­inn þremur vikum eftir fyrsta skammt­inn og örv­un­ar­skammt­ur, eða þriðji skammt­ur, tveimur mán­uðum eftir annan skammt­inn.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent