Helga Vala Helgadóttir hefur tekið við formennsku þingflokks Samfylkingarinnar en tillaga formanns þess efnis var samþykkt á þingflokksfundi í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá flokknum.
Tekur hún við af Oddnýju Harðardóttur en hún hefur verið þingflokksformaður flokksins síðan árið 2017.
Helga Vala hefur setið á þingi fyrir hönd Samfylkingarinnar frá árinu 2017. Hún var formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis á árunum 2017 til 2019 og formaður velferðarnefndar 2019 til 2021. Þórunn Sveinbjarnardóttir var auk þess kjörin varaformaður þingflokks og Kristrún Frostadóttir ritari þingflokks á fundinum.
„Þrátt fyrir sérstakt upphaf kjörtímabils erum við í Samfylkingunni full tilhlökkunar að þing komi saman enda mörg brýn verkefni framundan auk þess sem við höfum undanfarnar vikur unnið að mikilvægum málum sem við viljum setja á dagskrá,” sagði Helga Vala eftir fundinn.