Hofgarðar ehf., félag í eigu Helga Magnússonar, hefur keypt nýtt hlutafé í Torgi ehf., sem heldur úti Fréttablaðinu, DV og sjónvarpsstöðinni Hringbraut, fyrir 300 milljónir króna. Frá þessu er greint í Fréttablaðinu í dag. Skjölum vegna hlutafjáraukningarinnar hefur ekki verið skilað til Skattsins og breytt eignarhald vegna hennar hefur ekki verið tilkynnt til fjölmiðlanefndar líkt og lög gera ráð fyrir.
Torg er í eigu tveggja félaga, Hofgarða ehf. og HFB-77 ehf. Eigandi fyrrnefnda félagsins er fjárfestirinn Helgi Magnússon og hann á 82 prósent í því síðarnefnda. Helgi er auk þess stjórnarformaður Torgs. Aðrir eigendur þess eru Sigurður Arngrímsson, fyrrverandi aðaleigandi Hringbrautar og viðskiptafélagi Helga til margra ára, Jón G. Þórisson, fyrrverandi ritstjóri Fréttablaðsins, og Guðmundur Örn Jóhannsson, fyrrverandi sjónvarpsstjóri Hringbrautar og nú framkvæmdastjóri sölu, markaðsmála og dagskrárgerðar hjá Torgi. Hlutur annarra en Helga er hverfandi.
Í Fréttablaðinu í dag segir að alls hafi heildarhlutafé Torgs ehf. nemi nú 750 milljónum króna, sem allt hefur verið keypt á genginu tveimur fyrir samtals 1.500 milljónir króna.
Hópurinn keypti Torg í tveimur skrefum á árinu 2019. Kaupverðið var trúnaðarmál en í ársreikningi HFB-77 ehf. fyrir árið 2019 má sjá að það félag keypti hlutabréf fyrir 592,5 milljónir króna á því ári. Torg var og er eina þekkta eign félagsins. Hlutafé í Torgi var svo aukið um 600 milljónir króna í lok árs 2020. Með nýju hlutafjáraukningunni er ljóst að settir hafa verið 1,5 milljarðar króna í kaup á Torgi og hlutafjáraukningar frá því að Helgi og samstarfsmenn hans komu að rekstrinum fyrir tveimur og hálfu ári.
Milljarðs tap af reglulegri starfsemi á tveimur árum
Kjarninn greindi frá því í nóvember í fyrra að rekstrartap Torgs, útgáfufélags Fréttablaðsins, Hringbrautar, DV og tengdra miðla, var 688,7 milljónir króna á árinu 2020. Árið áður var rekstrartap félagsins 197,3 milljónir króna og því nam sameiginlegt rekstrartap þess á tveimur árum 886 milljónum króna.
Þegar vaxtagjöldum vegna lána sem Torg hefur þurft að borga af og gengismun er bætt við kemur í ljós að tap af reglulegri starfsemi fyrir skatta var um 750 milljónir króna á síðasta ári og rúmlega einn milljarður króna á tveimur áður.
Færri útgáfudagar, minna upplag og lestur á leið undir 30 prósent
Flaggskipið í útgáfu Torgs er Fréttablaðið. Útgáfudögum þess var fækkað úr sex í fimm á viku á árinu 2020 þegar hætt var með mánudagsútgáfu blaðsins. Auk þess hefur dreifing fríblaðsins dregist saman úr 80 í 75 þúsund eintök á dag.
Lestur Fréttablaðsins mældist 30,5 prósent í nóvember. Hann hefur dalað jafnt og þétt undanfarin ár en í apríl 2007 var hann 65,2 prósent og hélst yfir 50 prósent þangað til í desember 2015. Síðsumars 2018 fór lesturinn svo undir 40 prósent í fyrsta sinn og stefnir nú undir 30 prósent á næstu mánuðum, en frá byrjun árs 2018 hefur lestur Fréttablaðsins aukist á milli mánaða í sex skipti en dalað 39 sinnum.
Í aldurshópnum 18 til 49 ára mælist lesturinn nú 21,1 prósent og er nú um þriðjungur þess sem hann var fyrir tólf árum.
Rekstrartekjur dregist mikið saman
Þrátt fyrir að Hringbraut, DV og ýmsum tengdum miðlum hafi verið bætt við samstæðuna þá hafa rekstrartekjur Torgs dregist umtalsvert saman á undanförnum árum. Þær voru tæplega 2,6 milljarðar króna á árinu 2018 en voru rétt yfir tvo milljarða króna árið 2020. Þar af skilaði sala, aðallega auglýsinga, 1.923 milljónum krónum þá en 2.574 milljónum króna tveimur árum fyrr. Tekjur af sölu hafa því dregist saman um fjórðung þrátt fyrir að fjölmiðlunum í samstæðunni hafi fjölgað umtalsvert á tímabilinu.
Í ársreikningi Torgs vegna ársins 2020 segir að ástæða hins mikla tapreksturs það ár hafi verið samdráttur í auglýsingatekjum ásamt því að kostnaður vegna launa og dreifingar jókst. „Á vormánuðum hefur rekstrarumhverfi Torgs ehf. hefur breyst mjög hratt til hins betra með aukinni auglýsingasölu þannig að stjórnendur félagsins gera sér vonir um að jafnvægi verði í rekstri þess á árinu 2021.“ Ársreikningur vegna 2021 liggur ekki fyrir enda þarf ekki að skila slíkum inn til Skattsins fyrr en í lok ágústmánaðar.
Þar segir þó einnig að eignir og skuldir félagsins séu metnar með hliðsjón af því að forsenda um rekstrarhæfi félagsins sé fyrir hendi. Sú óvissa um rekstrarhæfi snýst fyrst og síðast um mat á viðskiptavild sem metin er á 943,5 milljónir króna. Í áliti endurskoðanda Torgs í ársreikningi félagsins vegna ársins 2020 er gerð sérstök ábending vegna þessarar óvissu, en sérstaklega tekið fram að það sé gert án þess að fyrirvari sé gerður við reikninginn.
Heildarskuldir komnar í 1,5 milljarð króna
Viðskiptavild er mat á virði huglægra eigna fyrirtækis. Með því er til að mynda sett mat á fjárhagslegu verðmæti þess að eiga hóp fastra viðskiptavina, eins og þeirra sem kaupa auglýsingar af miðlum Torgs og þeirra sem lesa eða horfa á þá.
Í ársreikningi Torgs kemur fram að viðskiptavild félagsins hafi hækkað mikið árið 2020, alls um 191,1 milljón króna í 943,5 milljónir króna, þrátt fyrir að tekjur Torgs hafi dregist saman og reksturinn skilað 750 milljóna króna tapi af reglulegri starfsemi fyrir skatta.
Heildarskuldir Torgs jukust um 318,5 milljónir króna á árinu 2020 og stóðu í 1,5 milljarði króna í lok þess árs. þær hafa aukist um 740 milljónir króna á tveimur árum, eða nánast tvöfaldast.
Pappír hækkar vegna faraldursins
Torg er á meðal þeirra fjölmiðlafyrirtækja sem fengið hefur styrk úr ríkissjóði sem veittur er til einkarekinna fjölmiðla. Félagið fékk 50 milljónir króna á árinu 2019 og rúmlega 81 milljón króna vegna ársins 2020.
Þeir miðlar sem gefa út í prenti hafa orðið fyrir umtalsverðum kostnaðarhækkunum undanfarið sem rekja má til aðfangaskorts vegna kórónuveirufaraldursins. Sérstaklega þeir sem prenta stór upplög af blöðum í viku hverri, eins og Fréttablaðið.
Stundin greindi frá því í lok september að 40 prósent verðhækkun eða meiri væri yfirvofandi á dagblaðapappír og vitnaði þar í tilkynningu sem Landsprent, prentsmiðju í eigu Árvakurs, hafði sent viðskiptavinum sínum en Landsprent prentar meðal annars Stundina.
Kjarninn er á meðal þeirra fjölmiðla sem þiggja rekstrarstyrki úr ríkissjóði og fékk 14,4 milljónir króna við síðustu úthlutun. Þau fyrirtæki sem hér eru til umfjöllunar eru samkeppnisaðilar Kjarnans.