Stjórn Íbúðalánasjóðs hefur ráðið Hermann Jónasson sem forstjóra sjóðsins, úr hópi fjórtán umsækjenda. Greint er frá ráðningu Hermanns í dag, þar sem starfs- og námsferill hans er birtur. Hann mun hefja störf þann 20. júlí næstkomandi. Hermann tekur við starfinu af Sigurðu Erlingssyni sem sagði starfi sínu lausu í apríl síðastliðnum.
Hermann er lögfræðingur að mennt frá Háskóla Íslands (1995), héraðsdómslögmaður (2000) og löggiltur verðbréfamiðlari frá Háskólanum í Reykjavík (2003).
Hermann starfaði:
Auglýsing
- hjá Fjármálaráðuneytinu sem lögfræðingur á Tekju- og lagaskrifstofu ráðuneytisins (1995–2000),
- hjá Landsbréfum hf. sem forstöðumaður Verðbréfasviðs (2000–2002),
- hjá Landsbanka Íslands hf. sem forstöðumaður Verðbréfaþjónustu og Sérbankaþjónustu auk þess að vera framkvæmdastjóri Íslenska lífeyrissjóðsins (2002-2004),
- hjá Landsbanka Íslands hf. sem framkvæmdastjóri Sölu- og markaðssviðs (2004-2008)
- hjá Tal hf. sem forstjóri og leiddi þar m.a. sameiningu fjarskiptafyrirtækjanna Hive og Sko (2008-2010)
- hjá Arion banka hf. sem framkvæmdastjóri Þróunar- og markaðssviðs (2010-2011)
- hjá Lögfræðistofu Jónatansson & co. að lögfræðistörfum fyrir slitastjórn VBS fjárfestingarbanka hf. (2011-2015)
Hermann er giftur Guðrúnu Sigtryggsdóttur, yfirlögfræðingi hjá skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgar og saman eiga þau þrjár dætur.