Hluti leiðréttingarinnar fer til einstaklinga sem borguðu ekki skatt hérlendis og áttu engar skuldir á Íslandi árið 2013. Auk þess verða alls 5,8 milljarðar króna greiddir sem sérstakur persónuafsláttur til umsækjenda sem eru ekki lengur að greiða af fasteignalánum, annað hvort vegna þess að þeir hafa þegar greitt upp fasteignalán sín eða eru ekki lengur með slík. Þetta kemur fram í svari fjármála- og efnahagsráðuneytisins við fyrirspurn Kjarnans um skýrslu Bjarna Benediktssonar, fjármála- og efnahagsráðherra, um lækkun höfuðstóls verðtryggðra lána, sem birt var á mánudag.
Í skýrslunni voru birtar ýmsar skýringarmyndir sem sýndu skiptingu þess fjár sem ríkissjóður greiðir í aðgerðina milli aldurs- og tekjuhópa og landssvæða.
Kjarninn kallaði eftir frekari upplýsingum um tölurnar að baki skýringarmyndunum og fékk þær afhentar síðdegis á mánudag. Samkvæmt þeim er heildarupphæð þess sem hefur verið ráðstafað inn á höfuðstólslækkanir einungis 69,7 milljarðar króna, ekki 80,4 milljarðar króna líkt og heildarupphæð leiðréttingarinnar er. Því vantaði útskýringar á 10,7 milljarða króna útgjöldum í skýringarmyndunum.
Ekki greint frá skiptingu persónuafslátts milli hópa
Kjarninn óskaði eftir skýringum á þessu frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Þær bárust í dag. Samkvæmt þeim skýrist misræmið á tölunum sem settar eru fram í skýringarmyndunum, og þeirri 80,4 milljarða króna tölu sem á að fara í leiðréttinguna, á því að um 5,8 milljörðum króna var ráðstafað í sérstakan persónuafslátt í gegnum skattkerfið, til „einstaklinga sem sóttu um og fengu lækkun höfuðstóls en eiga ekki fasteign í dag“. Þeir sem eru búnir að greiða niður húsnæðislán sín, en uppfylltu samt sem áður skilyrði til að fá leiðréttingu, fá einnig greitt með sérstökum persónuafslætti.
Í skýrslu fjármála- og efnahagsráðherra er ekki greint frá því hvernig þessir tæpir sex milljarðar króna skiptast milli aldurs- og tekjuhópa né landssvæða. Kjarninn hefur kallað eftir upplýsingum um þá skiptingu.
Í svari ráðuneytisins við fyrirspurn Kjarnans segir að það sem út af stendur, um 4,8 milljarðar króna, tengist meðal annars því að aðilar sem hafi ekki fengið birtingu á leiðréttingu sinni og aðilar sem samþykktu ekki ráðstöfun lækkunar innan settra tímamarka, séu ekki teknir með í greiningunni. Það sem út af standi, að teknu tilliti til þess hóps, tengist því að„í greiningarkafla skýrslunnar eru umsækjendur sem ekki voru framtalsskyldir á Íslandi 2013 utan við úrtakið og því stemma ekki ráðstafaðar fjárhæðir við uppreiknaðar heildarfjárhæðir á bakvið greiningarnar.“ Því er hluti þeirra sem fær greitt úr leiðréttingunni, einstaklingar sem borga ekki skatta né skulda nokkuð á Íslandi, og skila því ekki skattframtali hérlendis. Þessi hópur getur hvorki fengið greitt inn á höfuðstól, þar sem hann hvorki á né skuldar af fasteign, né sérstakan persónuafslátt, þar sem hann greiðir ekki skatta á Íslandi.
Tölurnar ekki brotnar niður
Í svari ráðuneytisins kemur ekki fram hvernig þessir 4,8 milljarðar króna skiptast á milli ofangreindra hópa en í skýrslunni er tilgreint að 91,9 prósent af heildarupphæðinni, 80,4 milljörðum króna, eigi að renna inn á höfuðstól lána, eða alls 73,9 milljarðar króna. Það þýðir að um fjórir milljarðar króna til viðbótar eigi eftir að greiðast inn á lán þeirra sem hafa ekki fengið birtingu á leiðréttingu sinni eða hafa ekki samþykkt hana innan settra tímamarka. Raunar er því fólki í sjálfvald sett hvort það samþykki greiðsluna. Miðað við þessar forsendur, sem tilgreindar eru í skýrslunni, fara áum 700 milljónir króna til einstaklinga sem voru ekki framtalsskyldir á Íslandi árið 2013.
Kjarninn hefur fjallað ítarlega um skýrslu Bjarna Benediktssonar, fjármála- og efnahagsráðherra, frá því að hún kom út á mánudag. Hægt er að sjá hvernig þeir 69,7 milljarðar króna sem greiddir voru inn á höfuðstól lána eftir aldurs- og tekjuhópum og landssvæðum hér.