"Í velferðarráðuneytinu höfum við haft samband við Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna og upplýst um áhuga okkar á að taka á móti flóttamönnum frá Sýrlandi. Stofnunin hefur bent á að vandinn sé mestur í flóttamannabúðum í nágrannaríkjum Sýrlands og þá sérstaklega Líbanon og brýnast að taka við flóttamönnum þaðan. Við höfum jafnframt sett á fót verkefnisstjórn innan ráðuneytisins sem fundar daglega til að standa vel að verkefninu". Þetta en meðal þess sem Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, segir í stöðuuppfærslu á Facebook á síðunni "Kæra Eygló Harðar - Sýrland kallar" sem birtist í morgun. Þar fer Eygló yfir það sem gerst hefur í flóttamannamálum í vikunni.
Ég vil nota tækifærið og segja ykkur aðeins frá því sem hefur gerst í vikunni. Forsætisráðherra skipaði ráðherranefnd á...Posted by Eygló Harðardóttir on Thursday, September 3, 2015
Í færslunni rekur hún það sem stjórnvöld hafa gert undanfarna daga í málinu og segir frá því að sérstök ráðherranefnd muni funda í fyrsta sinn á morgun. Hún hrósar einnig aðstandendum Facebook-síðunnar "Kæra Eygló Harðar- Sýrland kallar", þar sem þúsundir Íslendinga hafa boðið fram aðstoð sína til flóttamanna. Eygló segir: "Hinir flottu aðstandendur þessa Facebook viðburðar hafa sett upp aðfangaskráningarsíðu sem mörg hver ykkar hafið nýtt til að skrásetja frjáls framlög til að geta tekið á móti flóttamönnum og skilst mér að þau munu afhenda Rauða krossinum gögnin þann 7. september.
Nokkuð hefur verið um fyrirspurnir vegna kostnaðar við móttöku flóttamanna. Það flækir svörin töluvert að um er að ræða nokkrar leiðir til móttöku flóttamanna. Í Fréttablaðinu í dag er ágætis umfjöllun um hvernig við í velferðarráðuneytinu höfum staðið að þessu hingað til við móttöku kvótaflóttamanna. Aðrar reglur hafa gilt um hælisleitendur og um fjölskyldusameiningar.
Þessu til viðbótar höfum við verið að fara yfir hina ýmsu tölvupósta og símtöl sem hafa borist okkur, svara fjölmiðlum og sinna fjölmörgum öðrum verkefnum í aðdraganda þingsetningarinnar sem verður næsta þriðjudag. Ef ég hef enn ekki komist til að svara ykkur sem hafa haft samband beint við mig, þá vona ég að tími gefist til þess í dag eða á morgun.
Að lokum vil ég enn á ný ítreka þakkir mínar. Góðvild ykkar og vilji til að hjálpa hefur snert mig djúpt."