Hópur undir forystu hollenska fjárfestisins Bertrand Kan hefur keypt fimm prósent hlut í Símanum af Arion banka. Eftir söluna á Arion banki enn 33 prósent hlut í Símanum, stærsta fjarskiptafyrirtæki landsins. Stefnt er að því að skrá hlutabréf Símans í Kauphöll Íslands í haust og í aðdraganda þess áformar Arion banki að minnka enn frekar hlut sinn.
Fjárfestahópurinn samanstendur af fjárfestum frá fimm löndum ásamt nokkrum af stjórnendum Símasamstæðunnar. Á meðal þeirra er Orri Hauksson, forstjóri Símans.
Í tilkynningu vegna þessa segir að Kan hafi áratugareynslu af fjárfestingastarfsemi á sviði fjarskipta og að Orri hafi átt frumkvæði að því að hópurinn var myndaður.
Þar er haft eftir Bertrand Kan að það sé mjög spennandi að fá að taka þátt í að skrifa næsta kafla í sögu Símans. "Ég kynntist félaginu og íslenskum fjarskiptamarkaði fyrst fyrir um áratug þegar ég hafði með höndum það verkefni að leiða söluferli Símans fyrir hönd Morgan Stanley. Heimurinn hefur tekið miklum breytingum síðan þá, en ég vona að alþjóðleg reynsla mín og annarra fjárfesta í þessum hópi geti komið fyrirtækinu að notum í framtíðinni.“
Orri Hauksson segir það stórt skref fyrir stjórnendahóp Símans að taka þátt í eignarhaldi félagsins. "Við höfum trú á fjárfestingunni til lengri tíma, teljum að hægt sé að auka verðmæti félagsins og erum sérstaklega ánægð með að fá til liðs við okkur nýja fjárfesta sem í fortíð og nútíð hafa náð að skapa ríkulega ávöxtun úr fjarskiptaverkefnum víðs vegar um heim.“
Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka, segir það gleðilegt að sjá áhuga fjárfesta á Símanum í aðdraganda skráningu félagsins í kauphöll. "Okkur þykir jákvætt að sjá bæði erlenda og innlenda fjárfesta í þeim hópi sem nú kaupir hlut í Símanum og jafnframt að stjórnendur samstæðunnar séu orðnir hluthafar, en það sýnir trú þeirra á félaginu og framtíð þess.“