Hópur þingmanna Sjálfstæðisflokks vill bjóða út rekstur flugstöðvar Keflavíkurflugvallar

Fimm þingmenn Sjálfstæðisflokks vilja að Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra nýti lagaheimildir til að opna á útboð á ýmsum þáttum í rekstri Isavia á Keflavíkurflugvelli, til dæmis reksturs fríhafnarverslana á vellinum.

Friðjón R. Friðjónsson varaþingmaður Sjálfstæðisflokks er fyrsti flutningsmaður tillögunnar.
Friðjón R. Friðjónsson varaþingmaður Sjálfstæðisflokks er fyrsti flutningsmaður tillögunnar.
Auglýsing

Fimm þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks, þar af þrír vara­þing­menn, hafa lagt fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu þess efnis að fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra verði falið að gera ráð­staf­anir svo að bjóða megi út rekst­ur, við­hald og upp­bygg­ingu Isa­via á starf­semi í Flug­stöð Leifs Eiríks­son­ar.

Þing­menn­irnir vilja að ráð­herra búi svo um hnút­ana að „fa­g­að­il­um“ verði kleift að bjóða í rekstur versl­ana með toll­frjálsar vörur á flug­vall­ar­svæð­inu, starf­semi sem er í beinum tengslum við flug­rekst­ur, rekstur flug­valla og flug­stöðvar og „aðra starf­semi sem nauð­syn­legt er að sé innan hafta­svæðis flug­vernd­ar“.

Frið­jón R. Frið­jóns­son borg­ar­full­trúi í Reykja­vík og vara­þing­maður er fyrsti flutn­ings­maður til­lög­unn­ar, en auk hans eru þing­kon­urnar Berg­lind Ósk Guð­munds­dóttir og Hildur Sverr­is­dóttir og vara­þing­menn­irnir Björg­vin Jóhann­es­son og Arnar Þór Jóns­son í hópi flutn­ings­manna.

Einn óhag­kvæm­asti og dýr­asti flug­völlur í Evr­ópu

Í grein­ar­gerð með til­lög­unni segir að ef fjár­mála­ráð­herra nýti heim­ild sína sam­kvæmt lögum til að leyfa Isa­via að „gera hvers konar samn­inga við aðra aðila til að ná til­gangi sínum á sem hag­kvæm­astan hátt“ og Kefla­vík­ur­flug­völlur verði þannig rek­inn með blönd­uðu rekstr­ar­fyr­ir­komu­lagi yrði „hægt að auka sam­keppn­is­hæfni flug­vall­ar­ins í þágu neyt­enda“.

Auglýsing

Þetta rök­styðja þing­menn­irnir með því að vísan í sam­keppn­is­mat OECD á íslenskri ferða­þjón­ustu og bygg­ing­ar­iðn­aði frá 2020, þar sem fram kemur að Kefla­vík­ur­flug­völlur „sé einn óhag­kvæm­asti og dýr­asti flug­völlur í Evr­ópu, jafn­vel í sam­an­burði við flug­velli af sömu stærð sem taka á móti svip­uðum fjölda far­þega og starf­ræktir eru við sam­bæri­legar veð­ur­fars­að­stæð­ur“ og að „rekstur opin­bera hluta­fé­lags­ins Isa­via sé sá óhag­kvæm­asti í sam­an­burði við rekstur allra ann­arra flug­rekstr­ar­að­ila í Evr­ópu“.

Frá Keflavíkurflugvelli. Mynd: Isavia

Í útdrætti úr skýrslu OECD sagði að líkur væru á að núgild­andi reglu­verk og fyr­ir­komu­lag eign­ar­halds flug­valla á Íslandi kynni að stuðla að þess­ari nið­ur­stöðu. Lagt var til af hálfu OECD að kann­aðar yrðu leiðir til að „auka hvata Isa­via á Kefla­vík­ur­flug­velli til að draga úr kostn­aði og auka sam­keppn­is­hæfni“ til dæmis með breyttri skipan eign­ar­halds eða rekst­urs með útboði á rekstri Kefla­vík­ur­flug­vall­ar, eða aðskildu útboði fyrir rekstur inn­an­lands­flug­valla.

Þing­menn­irnir fimm segja þings­á­lykt­un­ar­til­lögu sína fyrsta skrefið í þessa átt og minn­ast einnig á gagn­rýni sem Isa­via hefur hlotið frá Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu, en í áliti eft­ir­lits­stofn­un­ar­innar sem gefið var út í jan­úar á þessu ári sagði að hátt­semi Isa­via á síð­ustu árum hefði vakið upp „áleitnar spurn­ing­ar“ um það hvernig rík­is­fyr­ir­tækið nálg­að­ist sam­keppni og sam­keppn­is­mál.

Í grein­ar­gerð þing­mann­anna segir að fjár­þörf Isa­via verði mikil á næstu árum og bent er á að sam­kvæmt árs­skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar frá 2021 telji Isa­via sig þurfa að lág­marki 12-18 millj­arða króna í nýju hlutafé á næstu tveimur árum til að standa undir nauð­syn­legum fjár­fest­ing­um. Að mati þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks er það vafa­mál „hvort rétt­læt­an­legt sé að nota almannafé í áhættu­rekstur líkt og rekstur flug­stöðv­ar“.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent