Höskuldur Ólafsson: Reynt að villa um fyrir almenningi með óábyrgum málflutningi

Höskuldur-Ólafsson2.jpg Höskuldur Ólafsson
Auglýsing

Hösk­uldur Ólafs­son, banka­stjóri Arion banka, segir að óháðir mats­menn hafi kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að lána­safn AFLs spari­sjóðs væri ofmetið um tæpan einn millj­arð króna og við það varð eigið fé sjóðs­ins nei­kvætt. Það hafi verið honum nokkuð áfall þegar hann var upp­lýstur um alvar­leika máls­ins af stjórn hans. Eftir að það hafi legið fyrir hafi það verið mat Fjár­mála­eft­ir­lits­ins að for­sendur fyrir því að selja AFL væru brostnar þar sem sjóð­ur­inn væri fjár­mála­fyr­ir­tæki á fallandi fæti. Því hafi ekk­ert annað verið í stöð­unni en að sam­eina spari­sjóð­inn Arion banka, sem átti 99,3 pró­sent hlut í honum fyrir inn­limun­ina. Arion sé eini lang­tíma­lán­veit­andi AFLs og hefur auk þess fellt niður með skil­yrtum hætti lán sem honum voru veitt upp á 2,4 millj­arða króna. Starf­semi AFLs hefði stöðvast án stuðn­ings Arion banka. Til­teknir ein­stak­lingar reyni hins vegar að villa um fyrir almenn­ingi og við­skiptavinum sjóðs­ins með óábyrgum mál­flutn­ingi. Þetta kemur fram í grein sem Hösk­uldur skrifar í Morg­un­blaðið í dag.

Sam­keppn­is­eft­ir­litið heim­il­aði í síð­ustu viku sam­ein­ingu Arion banka og AFLs spari­sjóðs eftir að mat KPMG á lána­safni sjóðs­ins leiddi í ljós að staða hans er mun verri en fram kom í síð­asta árs­reikn­ingi. Í til­kynn­ingu kom fram að AFL þyrfti á veru­legu eig­in­fjár­fram­lagi að halda til að upp­fylla kröfur Fjár­mála­eft­ir­lits­ins um eig­in­fjár­hlut­fall og því hefði Sam­keppn­is­eft­ir­litið nú end­ur­skoðað fyrri ákvörðun og heim­il­að ­Arion banka að sam­eina AFL spari­sjóð bank­anum þar sem spari­sjóð­ur­inn er tal­inn fjár­mála­fyr­ir­tæki á fallanda fæti.

Róbert kall­aði Hösk­uld síbrota­mann



Sam­ein­ingin hefur verið harð­lega gagn­rýnd úr ýmsum átt­um, sér­stak­lega þar sem hópur undir for­ystu Tryggva Þórs Her­berts­son­ar, með aðkomu sveit­ar­fé­lag­anna Skaga­fjarðar og Fjalla­byggð­ar, hafði hug á því að bjóða í sjóð­inn. Margir gagn­rýn­is­menn, meðal ann­ars Gunnar Birg­is­son, bæj­ar­stjóri Fjalla­byggð­ar, hafa látið í það skína að Arion banki hafi ákveðið að inn­lima spari­sjóð­inn til að ljúka deilum við hann fyrir dóm­stólum um úrlausn erlendra lána sem AFL tók hjá Arion banka, sem gætu gjör­breytt fjár­hags­stöðu sjóðs­ins.

Aðrir gagn­rýn­is­menn hafa gengið mun lengra. Róbert Guð­finns­son, athafna­maður á Siglu­firði, skrif­aði pistil á vef­inn siglo.is í síð­ustu viku þar sem hann sagði að ráð­andi öfl í Arion banka hafi lagst svo lágt að inn­lima AFL spari­sjóð með ofbeldi til að hylma yfir klúður yfir­manna bank­ans í upp­stokkun á fjár­hag hans. Þessi litla lána­stofnun sem varð til við sam­ein­ingu Spari­sjóðs Skaga­fjarðar og elstu pen­inga­stofn­unar lands­ins, Spari­sjóðs Siglu­fjarð­ar, mun nú renna inn í sjóði erlendra vog­un­ar­sjóða undir nafni Arion banka.

Auglýsing

Þar hellir hann sér einnig yfir Arion banka, bæði almennt og vegna inn­limunar AFLs spari­sjóðs. Róbert sagði meðal ann­ars að í stjórn Arion banka hafi settir útbrunnir ein­stak­lingar með tak­mark­aða getu til umbreyt­ingu sem þjóna vog­un­ar­sjóðum og að í banka­stjóra­stólnum sitji síbrota­maður (Hösk­uldur Ólafs­son) sem „á feril í fyr­ir­tækjum sem ítrekað hafa verið í rann­sókn vegna brota á sam­keppn­is­lög­um“. Yfir fyr­ir­tækja­svið­inu sé „Quisl­ing­ur“ (Hall­dór Bjarkar Lúð­víks­son) sem hafi keypt sér frið­helgi hjá Sér­stökum sak­sókn­ara gegn því að vitna gegn fyrrum sam­starfs­mönnum sín­um.

Róbert hefur síðan þá hætt öllum við­skiptum við AFL, en hann hefur lagt millj­arða króna í eft­ir­tekt­ar­verða upp­bygg­ingu á Siglu­firði á und­an­förnum árum.

Hösk­uldur gefur lítið fyrir þessa gagn­rýni í grein sinni í dag og segir að mögu­leg nið­ur­staða dósmála breyti engu um hversu alvar­leg staða AFLs sé. " Það er miður að til­teknir ein­stak­lingar reyni að villa um fyrir almenn­ingi og við­skipta­vinum spari­sjóðs­ins með óábyrgum mál­flutn­ingi hvað þetta varð­ar."

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None