Bændasamtök Íslands, sem eiga Hótel Sögu, hafa ákveðið að selja ekki hótelið á grundvelli þeirra tilboða sem þeim hafa borist í það. Hótelið var auglýst til sölu í nóvember í fyrra. Hótelið sjálft er 209 herbergi en auk þess er ýmis önnur starfsemi í þessu 19 þúsund fermetra stóra húsi. Þar á meðal eru skrifstofur Bændasamtaka Íslands. Fjórir hópar skiluðu bindandi kauptilboðum í Hótel Sögu. Samkvæmt frétt DV um málið var verðið sem þeir unnu með í kringum fjórir milljarðar króna. Hóparnir fjórir voru hópur fagfjárfesta sem verðbréfafyrirtækið Arctica Finance setti saman, fjárfestar tengdir Keahótelum, sjóðsstýringarfyrirtækið Stefnir, sem er dótturfélag Arion banka, og jafnframt fagfjárfestar sem Straumur fjárfestingabanki stendur að baki.
Nú hafa Bændasamtökin hafnað öllum tilboðunum. Í tilkynningu frá samtökunum segir að upphaflega hafi borist sex tilboð og þegar frestur til að leggja fram skuldbindandi tilboð rann út 16. janúar hafi fjögur tilboð borist. Það er mat samtakanna að ekkert tilboðanna hafi verið nægilega hagstætt.
Í tilkynningunni er haft eftir Sigurgeir Sindra Sigurgeirssyni, formanni Bændasamtakanna, að samtökin séu ánægð með þann áhuga sem hafi komi fram í söluerlinu. „Því miður bárust okkur ekki nægilega hagstæð tilboð til að skynsamlegt sé að selja eignina á þessum tímapunkti. Okkar markmið er að ávaxta eignir samtakanna með sem bestum hætti. Þegar við lögðum mat á fyrirliggjandi tilboð komumst við að þeirri niðurstöðu að á þessum tímapunkti þjónaði áframhaldandi rekstur hótelsins betur því markmiði. Það hefur verið mikil gróska í ferðaþjónustu á Íslandi undanfarin misseri. Næstu skref hjá okkur eru að hefja vinnu við endurbætur á hótelinu til að tryggja að Hótel Saga hafi áfram þann virðulega sess sem það hefur ávallt haft í hugum Íslendinga.“
Kjarninn fjallaði ítarlega um sölu Hótel Sögu í nóvember síðastliðnum.