Hótel Saga skilaði 46 milljóna króna hagnaði

saga.jpg
Auglýsing

Hótel Saga hagn­að­ist um 46 millj­ónir króna á árinu 2014. Tekjur hót­els­ins juk­ust um 14 pró­sent milli ára og voru rúm­lega 1,5 millj­arður króna. Í frétta­til­kynn­ingu frá Hótel Sögu vegna þessa kemur fram að tekju­aukn­ingin skýrist af auknum fjölda ferða­manna og betri nýt­ingu hót­els­ins. Hagn­aður fyrir skatta, fjár­magns­kostnað og afskrift­ir, svo­nefndur EBIT­DA-hagn­að­ur, var 268 millj­ónir króna.

Í til­kynn­ing­unni er einnig sagt frá því að Bænda­sam­tök Íslands, sem eiga Hótel Sögu, hafi fyrr á þessu ári ákveðið að ganga ekki til við­ræðna um sölu á hót­el­inu. Það hafi verið mat stjórnar sam­tak­anna að hag­stæð­ara væri að halda rekstri hót­els­ins áfram fremur en að ganga að fyr­ir­liggj­andi til­boð­um. Sú afstaða hafi ekki breyst.

Reyndu að selja hót­elið í fyrra



Hótel saga var aug­lýst til sölu í nóv­em­ber 2014. Í jan­úar 2015 til­kynnt­u Bænda­sam­tök Íslands, sem eiga Hótel Sögu, að þau ætl­uðu ekki að selja hót­elið á grund­velli þeirra til­boða sem þeim hafa borist í það. Hót­elið sjálft er 209 her­bergi en auk þess er ýmis önnur starf­semi í þessu 19 þús­und fer­metra stóra húsi. Þar á meðal eru skrif­stofur Bænda­sam­taka Íslands. Fjórir hópar skil­uðu bind­andi kauptil­boðum í Hótel Sögu. Sam­kvæmt frétt DV um málið í jan­úar var verðið sem þeir unnu með í kringum fjórir millj­arðar króna. Hóp­arnir fjórir sem skil­uðu til­boðum voru hópur fag­fjár­festa sem verð­bréfa­fyr­ir­tækið Arct­ica Fin­ance setti sam­an, fjár­festar tengdir Kea­hót­el­um, sjóðs­stýr­ing­ar­fyr­ir­tækið Stefn­ir, sem er dótt­ur­fé­lag Arion banka, og jafn­framt fag­fjár­festar sem Straumur fjár­fest­inga­banki stendur að baki.

Í til­kynn­ingu frá Bænda­sam­tök­unum vegna þessa var meðal ann­ars haft eftir Sig­ur­geiri Sindra Sig­ur­geirs­syni, for­manni þeirra, að sam­tökin væru ánægð með þann áhuga sem komið hefði fram í sölu­ferl­in­u.  „Því miður bár­ust okkur ekki nægi­lega hag­stæð til­boð til að skyn­sam­legt sé að selja eign­ina á þessum tíma­punkti. Okkar mark­mið er að ávaxta eignir sam­tak­anna með sem bestum hætti. Þegar við lögðum mat á fyr­ir­liggj­andi til­boð komumst við að þeirri nið­ur­stöðu að á þessum tíma­punkti þjón­aði áfram­hald­andi rekstur hót­els­ins betur því mark­miði. Það hefur verið mikil gróska í ferða­þjón­ustu á Íslandi und­an­farin miss­eri. Næstu skref hjá okkur eru að hefja vinnu við end­ur­bætur á hót­el­inu til að tryggja að Hótel Saga hafi áfram þann virðu­lega sess sem það hefur ávallt haft í hugum Íslend­inga.“

Auglýsing

Stutt síðan að fjár­hags­leg end­ur­skipu­lagn­ing fór fram



Hótel Saga gekk í gegnum fjár­hags­lega end­ur­skipu­lagn­ingu á árinu 2013. Kjarn­inn greindi frá því í mars 2014 að Bænda­sam­tökin hefðu lagt Hótel Sögu til 250 millj­ónir króna í nýtt eigið fé gegn því að fá skuldir Hótel Sögu nið­ur­felld­ar. Þetta var á meðal sam­komu­lags­at­riða í þrí­hliða sam­komu­lagi Bænda­sam­tak­anna, Arion banka og Hótel Sögu ehf. um fjár­hags­lega end­ur­skipu­lagn­ingu hót­els­ins. Sindri vildi þá ekki upp­lýsa um hversu miklar skuldir hefðu verið nið­ur­felld­ar.

Í til­kynn­ingu sem hann sendi í kjöl­far umfjöll­unar Kjarn­ans á þeim tíma sagði Sindri hins vegar að hluta­fjár­hækk­un­unin hafi verið fjár­mögnuð „að stærstum hluta með láns­fé, eða 165 millj­ónir króna, og að hluta með sjálfsafla­fé, eða 85 millj­ónir króna“.

Kjarn­inn fjall­aði ítar­lega um end­ur­skipu­lagn­ingu og mögu­lega sölu Hótel Sögu í frétta­skýr­ingu í nóv­em­ber 2014.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None