Hótelherbergjum á Íslandi fjölgaði um 28 prósent frá 2010 til 2014, eða um rúmlega sex prósent á ári að meðaltali. Á sama tíma hefur erlendum ferðamönnum fjölgað um 111 prósent, eða um meira en 20 prósent á ári að meðaltali. Fjöldi erlendra ferðamanna um hvert hótelherbergi hefur því aukist úr 103 árið 2010 í 169 árið 2014.
Þetta kemur fram í markaðspunktum greiningardeildar Arion banka í dag þar sem fjallað er um mikla uppbyggingu í hóteliðnaði á Íslandi og nýtingu hótelherbergja.
„Þrátt fyrir talsverða fjölgun gistirýma á undanförnum árum hefur nýting hótelherbergja víðast hvar á landinu haldið áfram að batna ár frá ári. Áhyggjuraddir hafa heyrst víða vegna mögulegrar offjárfestingar í hótelbyggingum, enda hefur verið mikið um nýbyggingu hótela í miðbæ Reykjavíkur og víðar að undanförnu og fleiri áform eru á teikniborðinu. Fjárfestingarnar virðast hingað til ekki hafa komið niður á nýtingarhlutfalli hótelherbergja, en hafa ber í huga að enn er von á talsverðri framboðsaukningu hótelherbergja á næstu misserum, svo ekki sé minnst á annars konar gistirými. Meiri óvissa ríkir um eftirspurnina þar sem erfitt er að spá fyrir um komur ferðamanna hingað til lands mörg ár fram í tímann. Að undanförnu hefur vöxturinn þó haldið áfram að koma jafnvel bjartsýnustu mönnum á óvart, en metaukning var í komum ferðamanna í maí, júní og júlí síðastliðnum hvort sem litið er til höfðatölu eða hlutfallslegrar fjölgunar. Var markið þó ekki sett lágt,“ segja sérfræðingar greiningardeildarinnar. Í júlí síðastliðnum heimsóttu 180 þúsund erlendir ferðamenn Ísland, sem er 25 prósent aukning miðað við júlí 2014.
Greiningardeild Arion segir mikla aukningu erlendra ferðamanna umfram fjölgun hótelherbergja endurspeglast í betri herbergjanýtingu víða um land. Það hafi verið tilfellið undanfarin ár, flesta mánuði ársins. „Hótelherbergi eru svo gott sem fullnýtt í júlí og ágúst á höfuðborgarsvæðinu og þó víðar væri leitað. Árstíðasveiflan er enn á undanhaldi. Til að mynda var nýting hótelherbergja á höfuðborgarsvæðinu í febrúar rétt tæplega 90% sem myndi teljast afar hátt nýtingarhlutfall í hvaða ferðamannaborg sem er, sérstaklega í febrúar. Má því segja að þrátt fyrir mikla fjárfestingu í hótelum um þessar mundir sé hótelgeirinn enn nálægt þolmörkum þegar kemur að því að taka á móti auknum fjölda ferðamanna í júlí og ágúst, hvort sem litið er til höfuðborgarinnar eða landsbyggðarinnar.“