Aldrei meira af makríl á Íslandsmiðum

13223647734_9b7d6a5fec_k-1.jpg
Auglýsing

Sam­kvæmt bráða­birgða­nið­ur­stöðum Haf­rann­sókn­ar­stofn­unar er heild­ar­magn mak­ríls meira en nokkru sinni fyrr á Íslands­mið­um, eða frá því að athug­anir hófust árið 2009. Hafró greinir frá þessu á vef­svæði sínu í dag en í gær lauk rúm­lega fimm vikna löngum leið­angri Árna Frið­riks­sonar sem hafði það megin mark­mið að meta magn og útbreiðslu mak­ríls umhverfis Íslands og við Græn­land. Framundan er frek­ari úrvinnsla á gögnum frá leið­angrinum og munu helstu nið­ur­stöður verða kynntar síð­ar, segir í frétt Hafró.

„Bráð­birgða­nið­ur­stöður sýna mun meira magn og suð­læg­ari útbreiðslu mak­ríls sunnan við Ísland en und­an­farin ár. Þá var mak­ríll fyrir öllu Vest­ur- og Aust­ur­landi í svip­uðu magni og fyrri ár, en lít­ils var vart norður af land­inu. Sam­kvæmt bráða­birgða­nið­ur­stöðum er heild­ar­magn mak­ríls á Íslands­miðum meira en nokkru sinni frá því að athug­an­irnar hófust árið 2009.

Við Græn­land var mak­ríl að sjá á stærsta hluta rann­sókna­svæð­is­ins og náði útbreiðsla hans allt suður fyrir Hvarf. Mak­ríll­inn var þó á þessu svæði hnapp­dreifð­ari en fyrri ár og magn hans minna,“ segir í frétt­inni. Alls var mælt á 92 fyr­ir­fram ákveðnum rann­sókn­ar­stöðvum auk mæl­inga á umhverf­is­þátt­um.

Auglýsing

Fram kemur að síld fannst nokkuð víða á rann­sókn­ar­svæð­inu, norsk-­ís­lensk síld austur og norður af Íslandi og íslensk sum­ar­gots­síld fyrir sunnan og vest­an. „Norður af Íslandi var vart við tölu­vert magn norsk-­ís­lenskrar síldar allt vestur að Horni, en svo vest­ar­lega hefur síldin lík­lega ekki gengið síðan á 7. ára­tugi síð­ustu ald­ar. Skörun á útbreiðslu síldar og mak­ríls var mest austan við land, en einnig tölu­verð á grunn­slóð sunnan og vestan lands þar sem mak­ríll var í bland við íslenska sum­ar­gots­síld. Í þessum leið­angri var minni áhersla lögð á að kanna útbreiðslu kolmunna en mak­ríls og síld­ar, en hann er að öllu jöfnu að finna á meira dýpi en togað var á.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None