Ágúst Ólafur snýr aftur á þing

Ágúst Ólafur Ágústsson, þingmaður Samfylkingarinnar, snýr aftur til starfa á Alþingi á morgun, 1. maí. Hann hefur verið í leyfi frá því í desember.

Ágúst Ólafur Ágústsson
Auglýsing

Ágúst Ólafur Ágústs­son, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, mun snúa aftur til þing­starfa á morg­un. Hann greinir frá þessu í stöðu­upp­færslu á Face­book.

Þar segir hann að það sé ekk­ert leynd­ar­mál að und­an­farna mán­uði hafi hann þurft að end­ur­skoða líf sitt og sækja sér fag­legrar aðstoðar við áfeng­is­vanda, sem var meiri en hann hefði áttað sig á. „Sú aðstoð sem ég hef fengið frá SÁÁ og fleiri stuðn­ings­hópum hefur reynst mér ómet­an­leg. Ég hef þurft að horfast í augu við líf mitt, við­ur­kenna van­mátt minn gagn­vart áfengi og vera til­bú­inn að þiggja aðstoð ann­arra. Hjá SÁÁ hefur mér opn­ast nýr heim­ur. Mark­mið þeirra sem leita sér aðstoðar er að verða betri sam­ferð­ar­menn fyrir sína nán­ustu og sam­fé­lagið allt. Hinni eig­in­legu með­ferð er nú lokið þótt verk­efn­inu ljúki vissu­lega aldrei.“

Ágúst seg­ist ekki taka því sem sjálf­gefnu að taka aftur sæti á þingi og að hann muni leggja sig allan fram við að ávinna sé traust á nýjan leik. „Ég brenn enn fyrir því að starfa í þágu sam­fé­lags­ins og koma góðum málum til leiðar sem stjórn­mála­mað­ur. Í raun er ég biðja um annað tæki­færi.“

Auglýsing

Á morgun lýkur leyfi mínu frá störfum á Alþingi. Það er ekk­ert leynd­ar­mál að und­an­farna mán­uði hef ég þurft að...

Posted by Ágúst Ólafur Ágústs­son on Tues­day, April 30, 2019
Ágúst Ólafur hefur verið í leyfi frá þing­­­störfum frá 7. des­em­ber 2018 eftir að hafa verið áminntur af trún­­­að­­­ar­­­nefnd flokks­ins vegna kyn­­­ferð­is­­­legrar áreitni gegn blaða­­­manni Kjarn­ans. Í til­­­kynn­ingu sem Ágúst Ólafur sendi frá sér 7. des­em­ber ætl­­­aði hann að taka sér tveggja mán­aða leyfi. Sam­­kvæmt þeirri fyr­ir­ætlan hefði hann átt að snúa aftur til starfa í dag, föst­u­dag­inn 8. febr­­ú­­ar. Í yfir­­lýs­ing­unni segir hann að hann skammist sín og iðrist mjög fyrir þá hegðun og þann dóm­­greind­­ar­brest sem hann hafi sýnt af sér. „Ég vil biðj­­ast aftur inn­i­­lega afsök­unar á hátt­­semi minn­i.“

Þegar tveir mán­uðir voru liðnir þá sendi Ágúst Ólafur frá sér aðra yfir­lýs­ingu ogsagði að hann myndi ekki taka til starfa aftur í bráð. Hann hefði óskað eftir ótíma­bundnu veik­inda­leyfi frá störfum á Alþingi á meðan að han lyki áfeng­is­með­ferð hjá SÁÁ og ynni að því að ná bata.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent