Hreinn Loftsson hættur sem aðstoðarmaður Jóns Gunnarssonar eftir tvær vikur í starfi

Annar aðstoðarmaður Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra hefur ákveðið að hætta. Tilkynnt var um ráðningu hans 1. desember síðastliðinn.

Hreinn Loftsson, lögmaður og nú fyrrverandi aðstoðarmaður dómsmálaráðherra.
Hreinn Loftsson, lögmaður og nú fyrrverandi aðstoðarmaður dómsmálaráðherra.
Auglýsing

Hreinn Lofts­son, sem var ráð­inn aðstoð­ar­maður Jóns Gunn­ars­sonar dóms­mála­ráð­herra um síð­ustu mán­aða­mót, hefur kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að hann hafi verið of fljótur á sér að þiggja boð Jóns, og hefur nú afráðið að láta af störf­um.

Frá þessu greinir hann í stöðu­upp­færslu á Face­book. Þar seg­ir: „​Þegar ég tók við starfi sem aðstoð­ar­maður Áslaugar Örnu Sig­ur­björns­dótt­ur, dóms­mála­ráð­herra, fyrir rétt rúmum tveimur árum lét ég þau orð falla að ég liti á það sem mik­inn heiður og fag­lega áskorun að taka að mér þetta verk­efni. Árin hafa svo sann­ar­lega verið við­burða­rík. Mál­efni ráðu­neyt­is­ins eru fjöl­mörg og spenn­andi. Ég tók því boði Jóns Gunn­ars­sonar þegar hann bauð mér að halda áfram störfum við ráð­herra­skiptin í byrjun mán­að­ar­ins. Fljót­lega komst ég þó að raun um að ég hafði verið of fljótur á mér og hef nú afráðið að láta af störf­um.“

Auglýsing
Daginn eftir að til­kynnt var um ráðn­ingu Hreins sem aðstoð­ar­manns Jóns var greint frá því að Brynjar Níels­son, fyrr­ver­andi þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, hafi verið ráð­inn í hitt astoð­ar­manna­starf­ið. Ráðn­ing­arnar sættu gagn­rýnni fyrir það að þrír karlar á sjö­tugs­aldri ættu að móta til að mynda mála­flokk kyn­ferð­is­brota­mála, en Brynjar hafði sömu­leiðis látið fjöl­mörg ummæli falla á und­an­förnum árum sem fóru illa í marga sem láta sér þann mála­flokk varða.

Hreinn lauk laga­­­námi við Háskóla Íslands árið 1983 og öðl­að­ist rétt­indi til mál­­­flutn­ings fyrir Hæsta­rétti árið 1993. Hann á að baki fjöl­breyttan feril í lög­­­­­mennsku, atvinn­u­lífi, stjórn­­­­­sýslu og sem aðstoð­­­ar­­­maður ráð­herra í nokkrum ráðu­­­neytum frá árinu 1985 til 1992. Hann var meðal ann­­ars aðstoð­­ar­­maður Dav­­íðs Odds­­sonar þáver­andi for­­sæt­is­ráð­herra og var for­­maður fram­­kvæmda­­nefndar um einka­væð­ingu um nokk­­urt skeið í kringum síð­­­ustu alda­­mót. Hreinn gegndi einnig stjórn­­­ar­­for­­mennsku í fjár­­­fest­ing­­ar­­fé­lag­inu Baugi um tíma og sat líka sem óbreyttur stjórn­­­ar­­maður þar , en það fór í þrot eftir banka­hrun­ið. 

Í nóv­­em­ber 2008 keypti Hreinn útgáfu­­fé­lagið Birt­ing, sem átti á þeim tíma DV. Hann seldi sig síðar út úr útgáfu­­starf­­sem­inn­i.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent