Hrólfur Ölvisson, framkvæmdastjóri Framsóknarflokksins, hafnar því að Framsóknarflokkurinn hafi sóst eftir því að eignast hlut í DV. Kjarninn hafði það eftir Ólafi M. Magnússyni, framkvæmdastjóra mjólkurbúsins Kú og fyrrum stjórnarformanni DV, að Hrólfur hafi þrívegis fundað með sér undir því yfirskini að menn tengdir Framsóknarflokknum vildu kaupa DV. Þetta hafi gerst á þeim tíma sem Ólafur var stjórnarformaður DV, en hann sagði sig úr stjórninni í maí í fyrra. Kjarninn sendi Hrólfi fyrirspurn um málið í gærmorgun sem hann svaraði ekki, Þá svaraði ekki á skrifstofu Framsóknarflokksins þegar hringt var þangað.
Í yfirlýsingu segir Hrólfur „Vegna frétta í Kjarnanum og öðrum fréttamiðlum í dag um að Framsóknarflokkurinn hafi sóst eftir því að eignast hlut í DV, skal upplýst að það er rangt. Hvorki ég fyrir hönd flokksins, né Framsóknarflokkurinn hefur farið þessa á leit og fullyrðingar Ólafs Magnússonar þar um eru rangar. Ólafur Magnússon kom nokkrum sinnum á minn fund til að ræða ýmis persónuleg málefni, bæði fjárhagsleg og önnur. Aldrei var einu orði minnst á að Framsóknarflokkurinn hefði hug á að eignast hlut í blaðinu, en Ólafur hafði orð á því að fyrra bragði að DV væri í fjárþröng og þyrfti á auknu hlutafé að halda.
Í frétt Kjarnans er eftirfarandi haft orðrétt eftir Ólafi: „Þegar ég var stjórnarformaður DV á sínum tíma þá kom framkvæmdastjóri Framsóknarflokksins og hitti mig nokkrum sinnum og spurði hvort ég gæti beitt mér fyrir því að menn tengdir flokknum gætu komist í að kaupa bréf í DV með einhverjum hætti. Það yrði auðvitað ekki flokkurinn sjálfur, heldur menn sem Kaupfélag Skagfirðinga myndi útvega fjármuni til þess að gera það. Ég ljáði auðvitað aldrei máls á þessu.“