Kristrún Frostadóttir þingmaður Samfylkingarinnar telur að það þurfi alvörubreytingar sem treysti stöðu leigjenda með því að draga úr verðþrýstingi á markaðnum „sem lekur yfir í allt verðlag“.
Þetta kom fram í ræðu Kristrúnar undir liðnum störf þingsins á Alþingi í dag.
Hún hóf mál sitt á því að segja að stórar samfélagslegar breytingar ættu sér ekki stað nema stjórnmálamenn hefðu kjark til að veita slíkum málum og breytingum forystu. „Það þarf kjark til að tala ekki bara um hlutina sem snerta fólk í daglegu lífi þess sem verkfræðilegt úrlausnarefni. Hvernig samfélagi við viljum búa í er hápólitískt mál.“
Kristrún sagði að sama hvað stjórnarliðar segðu um lífskjör í landinu þá vissi meirihluti landsmanna að alvarleg staða væri uppi á húsnæðismarkaði.
„Húsnæðismarkaðurinn á ekki að vera fjárfestingarmarkaður. Það er eitt að fjárfesta í eigin húsnæði til að eiga samastað og búa við húsnæðisöryggi, annað þegar íbúðarkaup eru orðin fjárfestingarkostur fyrir ávöxtun. Talað er um að framboðsskortur sé ástæðan fyrir að fólk sé fast á leigumarkaði, of lítið hafi verið byggt og verðið því hækkað mikið,“ sagði hún.
Hér þarf þjóðarsátt
Þingmaðurinn benti á að frá árinu 2005 hefðu 35.000 nýjar íbúðir verið byggðar. „Á sama tíma hefur íbúðum sem eru í eigu einstaklinga sem eiga tvær eða fleiri íbúðir og fyrirtækja fjölgað um 23.000. 67 prósent af viðbótarframboði á húsnæðismarkaði hafa ratað til einstaklinga sem ætla ekki að búa sjálfir í íbúðinni sem og til fyrirtækja. Þessar íbúðir áttu að vera heimili fólks. Þarna býr vissulega fólk í dag á almennum leigumarkaði en með takmarkaða vernd sem gerir því erfitt fyrir að kalla þetta öruggt heimili,“ sagði hún.
Kristrún greindi frá því að víða í Evrópu væri leigumarkaður sem tæki mið af eins konar þjóðarsátt um að húsnæði ætti ekki að vera uppspretta ávöxtunar heldur heimili fólks.
„Hér þarf slíka þjóðarsátt. Það þarf alvörubreytingar sem treysta stöðu leigjenda, viðkvæmra hópa og ungs fólks með beinum hætti og meirihluta fólks í þessu landi með óbeinum hætti, með því að draga úr verðþrýstingi á markaðnum sem lekur yfir í allt verðlag. Nær væri að fólk með aukafjármagn fjárfesti í einhverju sem raunverulega skapar hér verðmæti og atvinnutækifæri og heimilin væru látin í friði,“ sagði hún að lokum.