Húsnæði ætti ekki að vera uppspretta ávöxtunar – heldur heimili fólks

Þingmaður Samfylkingarinnar segir að húsnæðismarkaðurinn eigi ekki að vera fjárfestingarmarkaður. Það sé eitt að fjárfesta í eigin húsnæði til að eiga samastað og búa við húsnæðisöryggi, annað þegar íbúðarkaup séu orðin fjárfestingarkostur fyrir ávöxtun.

Kristrún Frostadóttir þingmaður Samfylkingarinnar.
Kristrún Frostadóttir þingmaður Samfylkingarinnar.
Auglýsing

Kristrún Frosta­dóttir þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar telur að það þurfi alvöru­breyt­ingar sem treysti stöðu leigj­enda með því að draga úr verð­þrýst­ingi á mark­aðnum „sem lekur yfir í allt verð­lag“.

Þetta kom fram í ræðu Kristrúnar undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í dag.

Hún hóf mál sitt á því að segja að stórar sam­fé­lags­legar breyt­ingar ættu sér ekki stað nema stjórn­mála­menn hefðu kjark til að veita slíkum málum og breyt­ingum for­ystu. „Það þarf kjark til að tala ekki bara um hlut­ina sem snerta fólk í dag­legu lífi þess sem verk­fræði­legt úrlausn­ar­efni. Hvernig sam­fé­lagi við viljum búa í er hápóli­tískt mál.“

Auglýsing

Kristrún sagði að sama hvað stjórn­ar­liðar segðu um lífs­kjör í land­inu þá vissi meiri­hluti lands­manna að alvar­leg staða væri uppi á hús­næð­is­mark­aði.

„Hús­næð­is­mark­að­ur­inn á ekki að vera fjár­fest­ing­ar­mark­að­ur. Það er eitt að fjár­festa í eigin hús­næði til að eiga sama­stað og búa við hús­næð­is­ör­yggi, annað þegar íbúð­ar­kaup eru orðin fjár­fest­ing­ar­kostur fyrir ávöxt­un. Talað er um að fram­boðs­skortur sé ástæðan fyrir að fólk sé fast á leigu­mark­aði, of lítið hafi verið byggt og verðið því hækkað mik­ið,“ sagði hún.

Hér þarf þjóð­ar­sátt

Þing­mað­ur­inn benti á að frá árinu 2005 hefðu 35.000 nýjar íbúðir verið byggð­ar. „Á sama tíma hefur íbúðum sem eru í eigu ein­stak­linga sem eiga tvær eða fleiri íbúðir og fyr­ir­tækja fjölgað um 23.000. 67 pró­sent af við­bót­ar­fram­boði á hús­næð­is­mark­aði hafa ratað til ein­stak­linga sem ætla ekki að búa sjálfir í íbúð­inni sem og til fyr­ir­tækja. Þessar íbúðir áttu að vera heim­ili fólks. Þarna býr vissu­lega fólk í dag á almennum leigu­mark­aði en með tak­mark­aða vernd sem gerir því erfitt fyrir að kalla þetta öruggt heim­il­i,“ sagði hún.

Kristrún greindi frá því að víða í Evr­ópu væri leigu­mark­aður sem tæki mið af eins konar þjóð­ar­sátt um að hús­næði ætti ekki að vera upp­spretta ávöxt­unar heldur heim­ili fólks.

„Hér þarf slíka þjóð­ar­sátt. Það þarf alvöru­breyt­ingar sem treysta stöðu leigj­enda, við­kvæmra hópa og ungs fólks með beinum hætti og meiri­hluta fólks í þessu landi með óbeinum hætti, með því að draga úr verð­þrýst­ingi á mark­aðnum sem lekur yfir í allt verð­lag. Nær væri að fólk með auka­fjár­magn fjár­festi í ein­hverju sem raun­veru­lega skapar hér verð­mæti og atvinnu­tæki­færi og heim­ilin væru látin í frið­i,“ sagði hún að lok­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent