„Það er húsnæðismarkaður sem þjónar frekar spákaupmönnum en þeirri grundvallarþörf fólks að eiga sér heimili. Réttur fjármagnseigenda og verktaka að búa til peninga á þessum markaði er metinn framar rétti fólks til að lifa við öryggi. Samkvæmt öllum helstu spám má vænta töluverðra hækkana á þessum óhefta markaði, ef ekkert verður að gert.“
Þetta segir Drífa Snædal forseti ASÍ í vikulegum pistli sínum í dag.
Pistillinn hefst á því að hún rifjar upp að fyrr á árum hafi hún unnið hjá Kvennaathvarfinu og eftir þá reynslu sé hún sannfærð um að ekkert sé verra en að njóta ekki heimilisöryggis. „Heimilið á að vera griðastaður og þarf að vera öruggt. Þetta grundvallarsjónarmið rifjaðist upp fyrir mér þegar ég heimsótti nýtt fjölbýlishús sem Samtök um kvennaathvarf hafa látið reisa til þess að auðvelda konum og börnum leiðina aftur út í lífið eftir dvöl í athvarfinu sjálfu. Bygging þessa húss er nauðsynleg, en líka afleiðing af grimmum húsnæðismarkaði þar sem tekjulítið fólk hefur fá tækifæri til að koma sér upp þaki yfir höfuðið.“
Drífa segir að það sé skýr krafa verkalýðshreyfingarinnar að stjórnvöld breyti viðhorfum sínum og húsnæðismálin verði eitt af stóru málunum við myndun nýrrar ríkisstjórnar. Rétturinn til öryggis verði að vera í forgrunni og stórfelld uppbygging húsnæðis án hagnaðarsjónarmiða verði að eiga sér stað.
Nauðsynlegt sé að koma húsnæðiseigendum í skjól fyrir verðbólgu og vaxtabreytingum þannig að fólk hafi möguleika á að skipuleggja framtíðina. Réttindi leigjenda verði að tryggja með nýjum lögum og binda verði endi á búsetu í atvinnuhúsnæði.