Hvalasafnið hefur ekkert heyrt frá stjórnvöldum vegna steypireyðar

maxresdefault.jpg
Auglýsing

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra til­kynnti á kjör­dæm­is­þingi Fram­sókn­ar­flokks­ins, sem haldið var á Hall­orms­stað um helg­ina, að beina­grind steypireyðar sem rak á land á Skaga árið 2010 verði flutt til tíma­bund­innar varð­veislu hjá Hvala­safn­inu á Húsa­vík. Hval­rek­inn heyrir ekki undir mála­flokk for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins, en Hvala­safnið á Húsa­vík er í kjör­dæmi for­sæt­is­ráð­herra.

Einar Gísla­son, fram­kvæmda­stjóri Hvala­safns­ins, heyrði af ákvörðun for­sæt­is­ráð­herra í fjöl­miðl­um. Hvala­safnið hefur frá árinu 2010 ítrekað sent erindi til ráð­neyta mennta- og umhverf­is­mála þess efnis að það fái beina­grind Steypireyð­ar­innar til varð­veislu. Þeim erindum hefur ekki verið svarað af hálfu stjórn­valda.

Í sam­tali við Kjarn­ann segir Ein­ar, að enn hafi engin form­leg til­kynn­ing eða stað­fest­ing borist Hvala­safn­inu frá stjórn­völd­um, um að beina­grind steypireyð­ar­innar sé á leið til Húsa­vík­ur. Hann á von á því að erindum safns­ins frá árinu 2010, verði nú form­lega svarað og ákvörðun for­sæt­is­ráð­herra um leið stað­fest.

Auglýsing

Sam­kvæmt rík­is­stjórn­ar­sam­þykkt frá því í ágúst 2010 er það á for­ræði mennta­mála­ráðu­neytis og umhverf­is­ráðu­neytis að ákveða, í sam­ráði við Nátt­úru­fræði­stofnun Íslands og Nátt­úru­minja­safns Íslands, hvar beina­grindin skuli varð­veitt. Í frétt RÚV í gær, kom fram að hvorki hafi verið haft sam­ráð við Nátt­úru­fræði­stofnun Íslands né Nátt­úru­gripa­safn Íslands varð­andi ákvörð­un­ina að senda beina­grind­ina Hvala­safn­inu á Húsa­vík til varð­veislu.

Til þess að koma beina­grind­inni fyr­ir, hyggst Hvala­safnið reisa nýja 500 fer­metra við­bygg­ingu með tíu metra loft­hæð, en steypireyð­urin er hugsuð sem krúnu­djásn safns­ins. Áætl­aður kostn­aður við fram­kvæmd­irnar er um 250 millj­ónir króna. Aðspurður um hvort ákvörð­unin um að Hvala­safn­inu verði afhend beina­grindin tíma­bundið hafi áhrif á fyr­ir­ætl­anir safns­ins, segir Einar Gísla­son svo ekki vera. "Við höfum ekk­ert heyrt frá stjórn­völdum vegna máls­ins og því vitum við ekk­ert hvaða skil­málar koma til með að fylgja beina­grind­inni, en ef það er svo að við fáum hana bara ­tíma­bundið til varð­veislu, þá munum við fara fram á að fá afsteypu af beina­grind­inni áður en við skilum henni aft­ur, sem þá yrði til sýnis í nýja sýn­ing­ar­saln­um," segir Einar í sam­tali við Kjarn­ann. Stefnt er að því að opna bráða­birgða­sýn­ingu á beina­grind­inni næsta sum­ar.

 

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None