Hverjir munu nú reyna að hossa sér á árangri landsliðsins?

island2.jpg
Auglýsing

Það er eig­in­lega orðið bara svo­lítið furðu­legt og súrrela­íst að fylgj­ast með íslenska karla­lands­lið­inu í fót­bolta. Maður á nefni­lega ekki að venj­ast því að liðið sigri svo marga leiki eins og raun ber vitni, og nú er það nán­ast búið að tryggja sig á loka­mót í fót­bolta í fyrsta skipti í sög­unni eftir frá­bæran sigur á sterku liði Tékka. Í leik, sem verður að segjast, flestir ein­hvern veg­inn áttu von á að liðið myndi sigra, svo mikil er til­trúin orðin á lið­inu.

Í partý­inu fyrir hrun reis hvert knatt­spyrnu­húsið á fætur öðru, svo hægt væri að stunda fót­bolta á þessu skeri veð­urs og vinda allt árið um kring. Á síð­ast­liðnum ára­tug eða svo hafa Íslend­ingar byggt upp ótrú­lega metn­að­ar­fulla knatt­spyrnu­að­stöðu, en um ald­ar­mótin fóru flestar vetr­a­r­æf­ingar fram á örfáum gervi­gras­völlum sem voru á land­inu, mal­ar­völlum og í ein­staka reið­höll­um. Í dag eru tíu knatt­spyrnu­hall­ir, ­yfir 20 gervi­gras­vellir og 130 sparkvellir víðs­vegar um land­ið. Sam­hliða hefur orðið bylt­ing í menntun þjálf­ara.

Það hefur skilað sér í því að lands­lið Íslands í karla- og kvenna­flokki, hafa tekið stór­stíg­um fram­förum á und­an­förnum árum. Áður fyrr mæti fólk á lands­leiki fyrst og síð­ast fyrir stemmn­ing­una, ótrú­legt en satt, en núna mætir fólk í úlpu á Laug­ar­dals­völl­inn í júní því það er lík­legra en ekki að lands­liðin okkar fari með sigur úr být­um.

Auglýsing

Ísland getur nán­ast gull­tryggt sig á loka­mót EM 2016 með góðum úrslitum á móti Hol­lend­ingum í Amster­dam í næsta leik. Nú er bara pæl­ingin hvernig ráða­menn Íslands munu reyna að hossa sér á árangri íslenska liðs­ins ef það kemst á Evr­ópu­meist­ara­mót­ið. Því þeir munu reyna að gera það. Flestum er enn í fersku minni þegar stjórn­mála­menn hristu limi sína upp á sviði með Óla Stef og félögum í íslenska karla­lands­lið­inu í hand­bolta eftir silf­ur­verð­launin á Ólymp­íu­leik­unum í Pek­ing árið 2008. Að ógleymdri Bermúd­a-­skál Dav­íðs Odds­son­ar, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, eftir afrek íslenska lands­liðs­ins í bridds. Stjórn­ar­flokk­arn­ir, sem mega muna sinn fífil feg­urri, munu klár­lega nýta sér tæki­færið til að troða sér á myndir með lands­liðs­mönn­un­um.

Eitt er þó víst, að for­ysta KSÍ, sem studdi með ráðum og dáðum hinn umdeilda Sepp Blatt­er, sem nú er grun­að­ur­ um að vera einn spillt­asti maður á jörð­inni, mun vafa­lítið reyna að nota árangur íslenska karla­lands­liðs­ins til að hressa upp á ímynd sína. Það er klár­lega hægt að tippa á það.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiPæling dagsins
None