Í lok árs í fyrra 2014 bjuggu 329.040 manns á Íslandi, 165.150 karlar og 163.890 konur, samkvæmt upplýsingum um mannfjölda sem Hagstofa Íslands birti í morgun. Landsmönnum fjölgaði um 870 á síðustu þremur mánuðum ársins í fyrra. Af heildarfjölda landsmanna bjuggu 211.230 manns á höfuðborgarsvæðinu en 117.820 utan höfuðborgarsvæðis.
Á fjórða ársfjórðungi 2014 fæddust 1.080 börn, en 520 einstaklingar létust. Á sama tíma fluttust 320 einstaklingar til landsins umfram brottflutta, samkvæmt upplýsingum Hagstofunnar. „Brottfluttir einstaklingar með íslenskt ríkisfang voru 160 umfram aðflutta, en aðfluttir erlendir ríkisborgarar voru 480 fleiri en þeir sem fluttust frá landinu. Fleiri karlar en konur fluttust frá landinu,“ segir í frétt Hagstofunnar.
Noregur var helsti áfangastaður brottfluttra íslenskra ríkisborgara en þangað fluttust 190 manns á síðustu þremur mánuðum ársins. Til Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar fluttust 380 íslenskir ríkisborgarar af 630 alls. Af þeim 610 erlendu ríkisborgurum sem fluttust frá landinu fóru flestir til Póllands, 190 manns.
Flestir aðfluttir íslenskir ríkisborgarar komu frá Danmörku (140), Noregi (130) og Svíþjóð (70), samtals 330 manns af 470. Pólland var upprunaland flestra erlendra ríkisborgara en þaðan fluttust 400 til landsins af alls 1.080 erlendum innflytjendum. Í lok fjórða ársfjórðungs bjuggu 24.230 erlendir ríkisborgarar á Íslandi.
Mannfjöldi, fæðingar, andlát og búferlaflutningar á 4. ársfjórðungi 2014 | |||
Alls | Karlar | Konur | |
Mannfjöldinn í lok ársfjórðungs | 329.040 | 165.150 | 163.890 |
Mannfjöldinn í upphafi ársfjórðungs | 328.170 | 164.710 | 163.460 |
Breyting | 870 | 440 | 440 |
Fæddir | 1.080 | 540 | 540 |
Dánir | 520 | 280 | 240 |
Aðfluttir umfram brottflutta | 320 | 170 | 140 |
Aðfluttir | 1.560 | 860 | 690 |
Brottfluttir | 1.240 | 690 | 550 |
Allar tölur eru námundaðar að næsta tug ef mannfjöldinn er meiri en 50 en að næsta hálfa tug ef talan er lægri. Ekki er tryggt að tölur gangi upp í samtölur vegna námundunarinnar. |