Íbúðalánasjóður hefur ákveðið að setja 400 íbúðir úr eignasafni sjóðsins í sérstakt söluferli. Þetta kemur fram í tilkynningu frá sjóðnum. Upplýsingar um söluferlið má finna á heimasíðu Íbúðalánasjóðs. Formlegt söluferli hefst þann 17. október nk. og þá geta væntanlegir kaupendur nálgast upplýsingaskýrslu um söluferlið og eignirnar á heimasíðu Íbúðalánasjóðs, að því er segir í tilkynningu frá Íbúðalánasjóði.
„Íbúðalánasjóður mun bjóða íbúðirnar til sölu í sjö eignasöfnum, en tilboðsgjafar geta boðið í eitt eða fleiri söfn. Þær 400 íbúðir sem boðnar verða til sölu í eignasöfnunum sjö eru staðsettar á Austurlandi, Norðurlandi, Vesturlandi, Suðurlandi, Suðurnesjum og á höfuðborgarsvæðinu. Fasteignamat þeirra er um 6,5 milljarðar króna. Sjóðurinn gerir þá kröfu til þeirra sem bjóða í eignirnar að þeir geri grein fyrir því hvernig þeir ætla að viðhalda útleigu íbúðanna og að þeir hafi trausta getu til fjármögnunar kaupanna,“ segir í tilkynningu frá Íbúðalánasjóðs.
Í tilkynningu segir að Íbúðalánasjóður vilji stuðla að virkum leigumarkaði til framtíðar litið. „Flestar þeirra eigna sem fara í söluferli að þessu sinni eru nú þegar í útleigu og margar þeirra voru byggðar sérstaklega sem leiguíbúðir. Við söluna er lagt til grundvallar að þær verði einungis seldar til aðila sem ætla að reka þær áfram til útleigu. Á þennan hátt vill Íbúðalánasjóður stuðla að uppbyggingu leigumarkaðar á Íslandi með húsnæðisöryggi þeirra sem búa í eignunum að leiðarljósi,“ segir í tilkynningunni.
Áhugasömum kaupendum verður boðið til kynningarfundar þriðjudaginn 14. október nk. kl. 9 í húsnæði Capacent að Ármúla 13 í Reykjavík. Þeir sem hyggjast sækja fundinn verða að skrá sig til þátttöku fyrir lok mánudagsins 13. október nk. Skráning fer fram á heimasíðu Íbúðalánasjóðs undir tenglinum „Sala sjö fasteignasafna – skráning á kynningarfund“. Á fundinum verður farið yfir söluferlið og fasteignasöfnunum lýst nánar, að því er segir í tilkynningu sjóðsins.