„Illskiljanlegt“ að ekki sé búið að koma innlendri greiðslumiðlun á fót

Gylfi Zoega hagfræðiprófessor segir að í ljósi þess að bent hafi verið á það fyrir þremur árum síðan að atlaga að fjarskiptastrengjum gæti valdið rofi í greiðslumiðlun innanlands sé „illskiljanlegt“ að ekki sé búið að koma á fót innlendri greiðslulausn.

Gylfi Zoega hagfræðiprófessor.
Gylfi Zoega hagfræðiprófessor.
Auglýsing

Gylfi Zoega, hag­fræði­pró­fessor við Háskóla Íslands og ytri nefnd­ar­maður í pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­bank­ans, segir „ill­skilj­an­legt“ að ekki sé enn búið að koma á ódýru inn­lendu greiðslu­kerfi sem ekki sé unnt að rjúfa „með því að skemma þá neð­an­sjáv­ar­strengi og kapla sem fjar­skipti okkar við umheim­inn fara um.“

Þetta er á meðal þess sem Gylfi gerir að umtals­efni í grein í nýjasta tölu­blaði Vís­bend­ingar, sem barst áskrif­endum síð­asta föstu­dag, en þar fjallar hann einnig um ýmsar vend­ingar í efna­hags­málum í heim­inum og nýj­ustu vaxta­á­kvörðun pen­inga­stefnu­nefndar Seðla­banka Íslands.

„Það var bent á það fyrir rúmum þremur árum að greiðslu­kerfið hér á landi væri ber­skjaldað fyrir því að þessir strengir væru eyði­lagð­ir,“ skrifar Gylfi í grein­inni og bendir á að nú hafi styrj­öld brot­ist út og gasleiðslur í Eystra­salti verið sprengd­ar.

Auglýsing

„Bret­land og Nor­egur hafa gripið til aðgerða til þess að vernda neð­an­sjáv­ar­strengi og leiðsl­ur. Það er ill­skilj­an­legt af hverju eftir þrjú ár hefur ekki tek­ist að koma á inn­lendri greiðslu­miðlun eins og þeirri sem var til í fjár­málakrepp­unni árið 2008 og skipti sköpum þegar við­skipti við erlenda banka stöðv­uð­ust. Á stríðs­tímum verður að hafa hrað­ann á,“ skrifar Gylfi.

Fjallað var um áhættu­þætti í greiðslu­miðlun á Íslandi í rit­inu Fjár­mála­stöðu­leika, sem Seðla­bank­inn gaf út í lok sept­em­ber sam­hliða yfir­lýs­ingu fjár­mála­stöð­ug­leika­nefnd­ar.

Þar var bent á að alvar­leg netárás í greiðslu­miðlun gæti leitt til þjón­ust­urofs í lengri tíma og raskað miðlun fjár­magns í hag­kerf­inu og að ann­ars konar rof í inn­lendri raf­rænni greiðslu­miðlun gæti líka valdið skaða, m.a. ef net­sam­band rofn­aði við umheim­inn eða alþjóð­legt korta­fyr­ir­tæki tæki ákvörðun um að loka á notkun inn­lendra debet- og kredit­korta.

Fjár­mála­stöð­ug­leika­nefnd Seðla­bank­ans árétt­aði í yfir­lýs­ingu sinni frá 28. sept­em­ber mik­il­vægi þess að auka öryggi í inn­lendri greiðslu­miðlun og sagði að í ljósi stöð­unnar væri „mik­il­vægt“ að skref hefðu verið tekin í átt að óháðri inn­lendri smá­greiðslu­lausn.

Hægt er að ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu með því að smella hér

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent