Illugi vann fyrir Orku Energy í Singapúr - Sérþekking hans háskólapróf og MBA-nám

illugi-gunnarsson.jpg
Auglýsing

Þau störf sem Ill­ugi Gunn­ars­son, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, vann fyrir Orku Energy á árinu 2011 voru vegna verk­efnis í Singapúr. Aðspurður um hvaða sér­þekk­ingu hann hafði til að sinna þeim störfum sem hann sinnti svarar Ill­ugi: „Próf í hag­fræði frá Háskóla Íslands og MBA frá London Business School“.

Heild­ar­greiðslur Ill­uga vegna starfa fyrir Orku Energy voru um 5,6 millj­ónir króna fyrir skatt. Líkt og fram hefur komið voru laun hans greidd fyr­ir­fram en síðan gefin út launa­seð­ill í febr­úar 2011. Hann var birtur á Twitt­er-­síðu Þor­björns Þórð­ar­son­ar, frétta­manns á Stöð 2, á föstu­dag.



Kjarn­inn spurði Ill­uga einnig hvort Haukur Harð­ar­son, stjórn­ar­for­maður Orku Energy, hefði verið með í veiði­ferð í Vatns­dalsá sem Ill­ugi fór í í fyrra­sum­ar. Ill­ugi svar­aði því til að hann veiti ekki fjöl­miðlum upp­lýs­ingar um ferðir ein­stak­linga eða um aðra per­sónu­hagi þeirra.

Seg­ist engin lán hafa fengið



Illugi hefir legið undir ámæli vegna tengsla sinn við Hauk Harð­ar­son, stjórn­ar­for­mann fyr­ir­tæk­is­ins Orku Energy. Haukur réð Ill­ugu sem ráð­gjafa fyr­ir­tækis síns á meðan að Ill­ugi var í launa­lausu leyfi frá þing­störfum vegna rann­sóknar á pen­inga­mark­aðs­sjóði Glitn­is, Sjóði 9, þar sem Ill­ugi sat í stjórn fyrir banka­hrun­ið. Haukur keypti síðan íbúð Ill­uga af honum í fyrra­sumar og leigði honum hana síðan aft­ur. Ill­ugi var þegar orð­inn ráð­herra þegar hann seldi íbúð­ina, en það gerði hann eftir að „nokkur fjár­hags­leg áföll“ höfðu dunið á hon­um.

Fjöl­miðar hafa ítrekað óskað frek­ari skýr­inga á ýmsum flötum máls­ins frá Ill­uga und­an­farna mán­uði, en án árang­urs. Hann tjáði sig loks um hluta máls­ins í við­tali við Frétta­blaðið á föstu­dag og við­ur­kenndi þá að það hefðu verið mis­tök að svara ekki fjöl­miðl­um. Ekk­ert í mál­inu kalli hins vegar á afsögn hans sem ráð­herra eða þing­manns.

Síðar sama dag kom Ill­ugi í við­tal í beinni útsend­ingu við frétta­stofu Stöðvar 2 til að útskýra meintar lán­veit­ingar Orku Energy til sín. Sam­kvæmt launa­seðl­inum var ekki um lán að ræða heldur fyr­ir­fram­greidd heild­ar­laun upp á 5,6 millj­ónir króna. Sam­tals nam fyr­ir­fram­greiðslan 2.950 þús­und krón­um.

Í svörum sínum við fyr­ir­spurn Kjarn­ans ítrekar Ill­ugi að hann hafi ekki fengið neitt lán frá Hauki.

Segir yfir­lýs­ingar um spill­ingu frá­leitar



Í Morg­un­blað­inu í morgun birt­ist aðsend grein eftir Ill­uga. Í grein­inni ítrekar ráð­herr­ann að hann telji ekk­ert í sam­skiptum sínum við Orku Energy gera hann fjár­hags­lega háðan fyr­ir­tæk­inu og að hann hafi ekki veitt fyr­ir­tæk­inu "að­stoð umfram það sem aðrir ráð­herrar og ráða­menn hafa gert á und­an­förnum árum. Yfir­lýs­ingar um spill­ingu eru því frá­leitar og munu að mínu mati dæma sig sjálfar þegar fram líða stund­ir."

Í grein­inni fjallar Ill­ugi einnig um hvort stjórn­mála­maður eigi alltaf að svara spurn­ingum fjöl­miðla, t.d. um per­sónu­leg fjár­mál hans. Hann segir það langt í frá sjálf­gefið að svo sé. "Lyndon B. John­son kall­aði reyndar slík trikk "make the bast­ards deny it" aðferð­ina, en sú aðferð byggir á því að á menn eru bornar ósann­aðar ávirð­ingar og þeim gert að svara þeim. Þannig er hægt að halda áfram og ef síðan stjórn­mála­mað­ur­inn neitar að svara þá er sú þögn gerð grun­sam­leg og túlkuð sem sönnun á sekt. Ýmsar spurn­ingar sem ég hef fengið frá fjöl­miðlum vegna þessa máls falla undir þessa aðferð­ar­fræð­i," segir Ill­ugi.

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None