Rússar hafa sett innflutningsbann á matvæli frá Íslandi og fjórum öðrum ríkjum, samkvæmt yfirlýsingu frá Dmitry Medvedev, forsætisráðherra Rússlands í dag. Íslandi hefur þannig verið bætt á lista Rússlands yfir þau lönd sem óhemilt er að flytja inn matvæli frá. Löndin sem bætast við á listann, þar sem Evrópusambandsríkin eru fyrir, eru Albanía, Svartfjallaland, Ísland, Liectenstein og Úkraína, samkvæmt rússneska fréttamiðlinum Sputnik News auk þess sem fréttaveitur Bloomberg og Reuters greindu frá tíðindunum.
„Fleiri lönd hafa verið sett innan við viðskiptabannið sem nær yfir Evrópusambandið, Ástralíu, Kanada, Noreg og Bandaríkin. Þessum löndum er bannað að flytja inn ákveðnar matvörur til Rússlands. Nýju löndin eru Albanía, Svartfjallaland, Ísland og Lichtenstein, auk þess að bannið á við Úkraínu í einhverjum tilvikum,“ sagði Medvedev á ríkisstjórnarfundi í dag.
Ekki liggur fyrir hversu víðtækt innflutningsbannið á matvörum er gagnvart Íslandi og hinum ríkjunum sem bætast á listann.
Stjórnvöld í Rússlandi tilkynntu í byrjun síðustu viku að til greina kæmi að víkka innflutningsbann á matvælum gagnvart Evrópusambandslöndum og láta það einnig ná til sjö ríkja utan sambandsins. Löndin sjö styðja viðskiptaþvinganir sambandsins, Bandaríkjanna og Kanada gegn Rússlandi vegna hernaðaraðgerða Rússa í Úkraínu. Í dag var tilkynnt um víkkun innflutningsbannsins þannig að það nær til fimm ríkja. Ísland er þeirra á meðal.
Miklir hagsmunir
Miklir hagsmunir eru í húfi fyrir íslensk sjávarútvegsfyrirtæki en útflutningur til Rússlands er helst á sjávarfangi, einkum frosnum loðnuafurðum, makríl og síld. Grafið hér að neðan sýnir verðmæti útflutnings til Rússlands á árunum 2010 til 2014. Nærri helmingur af makríl var seldur til Rússlands árið 2013.
Þetta er ekki í fyrsta sinn á undanförnum mánuðum sem Íslendingar óttast að Rússar loki fyrir innflutning héðan vegna stuðnings Íslands við viðskiptaþvinganir gegn landinu vegna aðgerða þess í Úkraínu. 23. október 2014 greindi Kjarninn frá því að fundað hefði verið með hagsmunaaðilum í sjávarútvegi í utanríkisráðuneytinu vegna stöðunnar sem komin er upp milli Íslands og Rússlands. Rússar höfðu þá hug á að loka á viðskipti við Ísland, og útvíkka þannig innflutningsbann á matvælum til Rússlands frá Vesturlöndum,.
Heildarutanríkisviðskipti við Rússland árinu 2013 námu ríflega 20 milljörðum króna. Þar af voru um 18 milljarðar vegna viðskipta með makríl, en um 47 prósent af öllum makríl sem veiddur var við Ísland árið 2013 fór inn á Rússlandsmarkað.
Á þessum tíma höfðu sjávarútvegsfyrirtæki fengið upplýsingar um að lokað yrði á viðskipi við Ísland, ekki síst vegna stuðnings Íslands við hertar pólitískar og efnahagslegar aðgerðir gegn Rússlandi, sem rekja má rekja til pólitískrar spennu og aðgerða Rússa í Úkraínu. Af þessu varð þó ekki.
Ástæðan fyrir þessari stöðu er sú að hinn 15. október 2014 birti Evrópuráðið tilkynningu, um að Ísland, Makedónía, Svartfjallaland, Albanía, Liechtenstein, Noregur, auk Úkraínu og Georgíu, stilltu sér upp með Evrópusambandsríkjum, með ákvörðun frá 23. júní, um hertar viðskiptaþvingangir gegn Rússum. Nýverið birti Evrópusambandið síðan fréttatilkynningu um áframhaldandi viðskiptaþvinganir gagnvart Rússum vegna aðgerða þeirra í Úkraínu. Ísland styður áfram þær aðgerðir líkt og það hefur gert frá byrjun.