Ísland gerði jafntefli við Letta - Efsta sæti riðilsins í hættu

9954418806_345a91c858_c.jpg
Auglýsing

Íslenska karla­lands­liðið í knatt­spyrnu lék sinn síð­asta heima­leik í und­ankeppni EM gegn Lettum í Laug­ar­dalnum í dag. Íslenska liðið komst tveimur mörkum yfir í fyrri hálf­leik fyrir framan troð­fullan Laug­ar­dals­völl en glutr­aði þeirri for­ystu niður í þeim síð­ari. Íslenska liðið er sem stendur enn í efsta sæti A-rið­ils þrátt fyrir úrslit­in. Það gæti þó breyst síðar í kvöld tak­ist Tékkum að sigra Tyrki á heima­velli.

Íslenska liðið lék án Arons Ein­ars Gunn­ars­son­ar, fyr­ir­liða liðs­ins, og Jóns Daða Böðv­ars­son­ar, fram­herj­ans sem leikið hefur lyk­il­hlut­verk í mögn­uðum árangri þess í und­ankeppn­inni fram til þessa. Í þeirra stað komu þeir Emil Hall­freðs­son og Alfreð Finn­boga­son inn í byrj­un­ar­lið­ið. Ísland fékk óska­byrjun og komst yfir strax á fimmtu mín­útu leiks­ins. Þá átti Gylfi Sig­urðs­son auka­spyrnu sem fór beint á mark Letta. Mark­maður Lett­lands réð ekki við hana og sló bolt­ann út í teig­inn þar sem Kol­beinn Sig­þórs­son þakk­aði pent fyrir sig og skor­aði.

Á 18. mín­útu urðu Íslend­ingar fyrir áfalli þegar Kári Árna­son, sem hafði leikið hverja ein­ustu mín­útu í und­ankeppni EM fram til þessa, þurfti að fara meiddur af leik­velli. Í hans stað kom Sölvi Geir Ottesen. Þetta virt­ist ekki setja Ísland mikið út af lag­inu og á 27. mín­útu óð Gylfi Sig­urðs­son glæsi­lega upp hálfan völl­inn og skor­aði með hnit­mið­uðu skoti.

Auglýsing

Íslend­ingar virt­ust slaka of mikið á í síð­ari hálf­leik og hleyptu Lettum strax inn í leik­inn í byrjun hans þegar þeir skor­uðu þremur mín­útum eftir að hann hófst. Lettar jöfn­uðu svo leik­inn á 68. mín­útu og þar við sat. Fyrsta jafn­tefli íslenska liðs­ins í und­ankeppni EM stað­reynd. Liðið er nú með 20 stig í efsta sæti A-rið­ils og með tólf mörk í plús. Úrslitin hafa engin áhrif á veru Íslands í loka­keppni EM í Frakk­landi næsta sum­ar. Sú vera var tryggð með sigri á Kasakstan í sept­em­ber­byrj­un.

Ísland á einn leik eftir í und­ankeppn­inni, gegn Tyrkjum ytra næst­kom­andi þriðju­dag.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None