Íslandsbanki byrjar ekki að horfa til fasteignamats 2023 fyrr en á nýju ári

Bæði Landsbankinn og Arion banki byrja strax að horfa til fasteignamats næsta árs við endurfjármögnun húsnæðislána. Íslandsbanki hins vegar horfir ekki til nýja fasteignamatsins fyrr en það tekur gildi og segir það gert í ljósi aðstæðna í efnahagslífinu.

Íslandsbanki ætlar ekki að byrja að taka tillit til nýs fasteignamats við endurfjármögnun húsnæðislána fyrr en nýja fasteignamatið hefur tekið gildi.
Íslandsbanki ætlar ekki að byrja að taka tillit til nýs fasteignamats við endurfjármögnun húsnæðislána fyrr en nýja fasteignamatið hefur tekið gildi.
Auglýsing

Íslands­banki, einn stóru við­skipta­bank­anna þriggja, mun ekki byrja að taka mið af nýju og hærra fast­eigna­mati fyrir árið 2023 í lána­vinnslu sinni fyrr en í upp­hafi næsta árs. Sú ákvörðun var tek­in, sam­kvæmt svari bank­ans til Kjarn­ans, í „ljósi aðstæðna í efna­hags­lífi og þrýst­ings á fast­eigna­mark­að­i“.

Bæði Arion banki og Lands­bank­inn hafa hins vegar ákveðið að byrja strax að horfa til nýja fast­eigna­mats­ins, sem er að með­al­tali hátt í 20 pró­sentum hærra á lands­vísu. Munu við­skipta­vinir þeirra banka sem eru með fast­eigna­lán því geta end­ur­fjár­magnað lán sín með til­liti til þess aukna veð­rýmis sem mynd­ast.

End­ur­fjár­mögnun í ljósi auk­ins veð­rýmis gæti til dæmis verið mögu­leg hjá þeim lán­tak­endum sem eru með fleiri en eitt hús­næð­is­lán og vilja sam­eina lán til þess að minnka mán­að­ar­lega greiðslu­byrði sína.

Auglýsing

Kjarn­inn veit um dæmi þess að við­skipta­vinur Íslands­banka hafi ætlað sér að ráð­ast í slíka aðgerð í dag, en orðið frá að hverfa vegna þeirrar ákvörð­unar bank­ans að byrja ekki strax að horfa til fast­eigna­mats árs­ins 2023.

Íslands­banki horfir til verð­mats við kaup á nýjum eignum

Í svari Íslands­banka til Kjarn­ans vegna fyr­ir­spurnar um þessi mál segir að fast­eigna­matið taki ekki gildi fyrr en á nýju ári og verði þá tekið inn í lána­vinnslu bank­ans.

Bank­inn segir rétt að taka fram að við kaup á nýjum eignum sé nú horft til verð­mats eign­ar­innar og vísar svo til þess að eins og fram hafi komið hafi „Seðla­bank­inn ítrekað mik­il­vægi þess að sam­spil vaxta­hækk­ana og hertra lán­þega­skil­yrða þurfi til þess að hægja á verð­hækkun hús­næðis og inn­lendri eft­ir­spurn“.

Miklar hækkanir hafa verið á fasteignamarkaði undanfarin misseri, sem nú endurspeglast í hærra fasteignamati og samfara því auknu veðrými fasteignaeigenda. Mynd: Bára Huld Beck

Má skilja svör bank­ans til Kjarn­ans á þann hátt að hann sé að leggj­ast á árarnar með Seðla­bank­anum með þess­ari ákvörðun sinni, sem er, eins og áður seg­ir, á skjön við það sem hinir tveir stóru bank­arnir á mark­aðnum ætla sér og einnig frá­vik frá því sem Íslands­banki sjálfur hefur gert á síð­ustu árum.

Lands­bank­inn byrj­að­ur, Arion banki á morgun

Frá Arion banka feng­ust þær upp­lýs­ingar að fast­eigna­mat 2023 yrði komið inn í raf­rænt íbúða­lána­ferli bank­ans strax á morg­un, 3. júní og Lands­bank­inn er þegar byrj­aður að horfa til fast­eigna­mats næsta árs við end­ur­fjár­mögnun lána.

„Já, þrátt fyrir að fast­eigna­mat 2023 taki ekki form­lega gildi fyrr en 31. des­em­ber 2022 og gildir fyrir árið 2023 þá heim­ilar Lands­bank­inn að tekið sé mið af því við beiðnum um end­ur­fjár­mögnun íbúða­lána strax og við birt­ingu þess eða frá og með 1. jún­í,“ segir í svari frá Lands­bank­an­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent