Íslendingar munu geta sótt heilbrigðisþjónustu til Evrópu

15850516779_84045ca1e5_z.jpg
Auglýsing

Krist­ján Þór Júl­í­us­son heil­brigð­is­ráð­herra hefur lagt fram frum­varp sem mun gera Íslend­ingum kleift að leita heil­brigð­is­þjón­ustu í öðrum ríkjum innan EES. Frum­varpið er til­skipun frá Evr­ópu­sam­band­inu og meg­in­til­gang­ur­inn er að tryggja rétt­indi sjúk­linga um heil­brigð­is­þjón­ustu yfir landa­mæri, og jafn­framt að auð­velda við­ur­kenn­ingu á lyf­seðlum sem eru gefnir út í öðrum aðild­ar­ríkj­um.

Ef frum­varpið verður sam­þykkt munu sjúkra­tryggðir hér á landi geta sótt heil­brigð­is­þjón­ustu ann­ars staðar í Evr­ópu og fengið end­ur­greiddan kostnað við það, að því marki sem sjúkra­trygg­ingar á Íslandi greiða fyrir sam­bæri­lega þjón­ustu hér á landi. Meg­in­reglan verður sú að ekki sé gerð krafa um að sótt sé um sam­þykki fyr­ir­fram. Hvorki vel­ferð­ar­ráðu­neytið né fjár­mála­ráðu­neytið segj­ast gera ráð fyrir því að margir muni nýta sér þetta.

„Mark­mið til­skip­un­ar­innar er að greiða fyrir aðgengi að öruggri hágæða­heil­brigð­is­þjón­ustu yfir landa­mæri, tryggja frjálst flæði sjúk­linga innan sam­bands­ins og stuðla að sam­vinnu um heil­brigð­is­þjón­ustu á milli aðild­ar­ríkja, að teknu til­liti til vald­heim­ilda aðild­ar­ríkj­anna til að skipu­leggja og veita sína eigin heil­brigð­is­þjón­ust­u,“ segir í grein­ar­gerð með frum­varp­inu. Ætl­unin er ekki að hvetja sjúk­linga til að leita sér með­ferða erlendis heldur aðeins að „tryggja rétt þeirra til frjálsrar farar milli aðild­ar­ríkja til að sækja sér heil­brigð­is­þjón­ustu með þeim tak­mörk­unum sem settar eru í hverju ríki fyrir sig.“

Auglýsing

Frum­varpið tekur þó ekki til lang­tímaumönnun aldr­aðra, heima­hjúkrun eða aðstoð í þjón­ustu­í­búð­um. Til­skip­unin gildir ekki heldur um líf­færa­ígræðslur eða bólu­setn­ingar gegn smit­sjúk­dóm­um. Þá er í frum­varp­inu skil­greint hvað telst vera alþjóð­lega við­ur­kennd lækn­is­með­ferð

Evr­ópu­dóm­stóll­inn hefur við­ur­kennt ýmis rétt­indi innan Evr­ópu­sam­bands­ins sem varða heil­birgð­is­þjón­ustu, einkum um end­ur­greiðslu fyrir heil­brigð­is­þjón­ustu sem er veitt í öðru aðild­ar­ríki en því sem fólk er búsett og sjúkra­tryggt í. „Evr­ópu­dóm­stóll­inn hefur stað­fest að hvorki sér­stakt eðli heil­brigð­is­þjón­ustu né hvernig hún er skipu­lögð eða fjár­mögnuð geti orðið til þess að heil­brigð­is­þjón­usta verði und­an­þegin grund­vall­ar­regl­unni um frelsi til að veita þjón­ustu innan sam­bands­ins. Ríkjum er þó heim­ilt að tak­marka end­ur­greiðslu kostn­aðar vegna heil­brigð­is­þjón­ustu yfir landa­mæri á grund­velli almanna­hags­muna.“

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None