Jóhann Páll Jóhannsson þingmaður Samfylkingarinnar gerði úttekt séreignarsparnaðar í COVID-faraldrinum að umtalsefni undir liðnum störf þingsins á Alþingi í vikunni.
„Það er nú ekki algengt að öryrkjar eigi digra varasjóði og þeir sem eiga einhvern séreignarsparnað veigra sér yfirleitt við að taka hann út, enda skerðir hann sérstöku framfærsluuppbótina hjá Tryggingastofnun ríkisins um 65 prósent, sem þýðir að sá sem tekur út 400.000 krónu séreignarsparnað borgar 129.000 krónur í skatt. Það er ofan á 260.000 krónu skerðingu hjá Tryggingastofnun. Eftir standa 11.000 krónur af þessum 400.000 krónum,“ sagði hann.
Rifjaði Jóhann Páll upp að þegar heimsfaraldurinn skall á hefði verið opnað fyrir þann möguleika, með sérstöku bráðabirgðaákvæði, að fólk yngra en 60 ára gæti tekið út séreignarsparnað.
„Þetta átti ekki að hafa nein áhrif á greiðslur frá Tryggingastofnun samkvæmt ákvæðinu. Það var alveg á hreinu. Á þessum forsendum tóku mörg hundruð öryrkjar út séreignarsparnað í góðri trú. Fólk gerði þetta af ýmsum ástæðum,“ sagði hann.
Tölvan segir nei
Jóhann Páll sagðist hafa talað við konu sem hefði neitað sér um tannlæknisþjónustu í mörg ár, nauðsynlegar tannviðgerðir, en hún hefði loksins greitt fyrir þær með því að taka út séreignarsparnaðinn sinn – eftir að stjórnvöld hefðu í raun hvatt fólk til að gera það í COVID.
„Hvað gerðist svo?“ spurði hann. „Jú, þessar greiðslur frá Tryggingastofnun, sérstaka framfærsluuppbótin, voru samt skertar. Þetta var bjarnargreiði. 300 öryrkjar lentu í þessu í fyrra. Mörgum þeirra hefur verið neitað um leiðréttingu á þeim forsendum að vörsluaðilar sparnaðarins hafi ekki skráð úttektina í réttan reit í skattframtalið og við því sé bara ekkert að gera. Svo vísa stofnanir hver á aðra. Tölvan segir nei.“
Þingmaðurinn hefur lagt fram fyrirspurnir til félags- og vinnumarkaðsráðherra, Guðmundar Inga Guðbrandssonar, og fjármála- og efnahagsráðherra, Bjarna Benediktssonar, um þetta mál og krafið þá skýringa á því hvort, hvernig og hvenær verði leyst úr þessu. „Afstaða okkar í Samfylkingunni er skýr. Íslenska ríkið á að skila þessum peningum. Íslenska ríkið á að skila þessum peningum strax,“ sagði hann að lokum.