Ákveðið hefur verið að opna íslenskt sendiráð í Varsjá, höfuðborg Póllands, síðar á þessu ári. Sendiráðið verður 27. sendiskrifstofa Íslands á erlendri grundu, samkvæmt því sem segir í fréttatilkynningu frá utanríkisráðuneytinu.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra kynnti tillögu um málið á fundi ríkisstjórnarinnar síðasta föstudag og kynnti utanríkismálanefnd þingsins málið í morgun. Hún átti síðan fund með Gerard Sławomir Pokruszyński, sendiherra Póllands á Íslandi, í hádeginu í dag þar sem honum var greint frá áformunum.
Í tillögunni er lagt til að fyrirsvar vegna Litáen, auk Úkraínu og Belarús (Hvíta-Rússlands), verði fært til hinnar nýju sendiskrifstofu í Varsjá.
Í tilkynningu ráðuneytisins segir að pólitísk, efnahagsleg og menningarleg samskipti Íslands og Póllands hafi aukist verulega á undanförnum árum og þá eigi sívaxandi fjöldi Íslendinga uppruna sinn að rekja til Póllands.
„Hagsmunir landanna fara saman í mikilvægum málaflokkum, svo sem öryggis- og varnamálum. Þá hafa aukin samskipti landanna, ekki síst vegna fjölda Pólverja sem eru búsettir á Íslandi, eflt viðskipta- og menningartengsl,“ segir í tilkynningu utanríkisráðuneytisins.
Fullgilt sendiráð Póllands á Íslandi frá 2013
Pólsk stjórnvöld hafa verið með sendiskrifstofu í Reykjavík frá 2008, fyrst með aðalræðisskrifstofu og síðan fullgilt sendiráð frá árinu 2013.
„Með opnun sendiskrifstofu Íslands í Varsjá kemst loks á nauðsynleg gagnkvæmni í stjórnmálasamband ríkjanna og það er ánægjulegt að geta stigið það skref og undirstrikað hversu verðmæt vinátta þjóðanna er fyrir okkur Íslendinga. Pólska sendiráðið í Reykjavík hefur sinnt mikilvægri þjónustu við þann stóra hóp Pólverja sem býr á Íslandi. Íslenskt sendiráð í Varsjá getur að sama skapi veitt íslenskum ríkisborgurum og Pólverjum með náin tengsl við Ísland þjónustu og um leið greitt götu íslenskra fyrirtækja á þessum slóðum og gætt íslenskra hagsmuna, til dæmis á vettvangi Uppbyggingarsjóðs EES,“ er haft eftir Þórdísi Kolbrúnu R. Gylfadóttur utanríkisráðherra í tilkynningu ráðuneytisins.
Stofnun sendiráðs Íslands í Varsjá var á meðal tillagna sem lagðar voru til í skýrslu sem kom út síðasta haust um samskipti Íslands og Póllands, en skýrslan byggði á vinnu starfshóps sem settur var á laggirnar í tíð Guðlaugs Þórs Þórðarsonar sem utanríkisráðherra.