Íslenskt sendiráð verður opnað í Póllandi

Til stendur að opna íslenskt sendiráð í Varsjá, höfuðborg Póllands, í haust. Stofnun sendiráðs í Varsjá var á meðal tillagna sem lagðar voru til í skýrslu sem kom út síðasta haust um samskipti Íslands og Póllands.

Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir utanríkisráðherra og Gerard Sławomir Pokruszyński, sendiherra Póllands á Íslandi.
Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir utanríkisráðherra og Gerard Sławomir Pokruszyński, sendiherra Póllands á Íslandi.
Auglýsing

Ákveðið hefur verið að opna íslenskt sendi­ráð í Var­sjá, höf­uð­borg Pól­lands, síðar á þessu ári. Sendi­ráðið verður 27. sendi­skrif­stofa Íslands á erlendri grundu, sam­kvæmt því sem segir í frétta­til­kynn­ingu frá utan­rík­is­ráðu­neyt­inu.

Þór­dís Kol­brún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir utan­rík­is­ráð­herra kynnti til­lögu um málið á fundi rík­is­stjórn­ar­innar síð­asta föstu­dag og kynnti utan­rík­is­mála­nefnd þings­ins málið í morg­un. Hún átti síðan fund með Ger­ard Sławomir Pokruszyński, sendi­herra Pól­lands á Íslandi, í hádeg­inu í dag þar sem honum var greint frá áformun­um.

Í til­lög­unni er lagt til að fyr­ir­svar vegna Litá­en, auk Úkra­ínu og Bela­rús (Hvíta-Rúss­lands), verði fært til hinnar nýju sendi­skrif­stofu í Var­sjá.

Auglýsing

Í til­kynn­ingu ráðu­neyt­is­ins segir að póli­tísk, efna­hags­leg og menn­ing­ar­leg sam­skipti Íslands og Pól­lands hafi auk­ist veru­lega á und­an­förnum árum og þá eigi sívax­andi fjöldi Íslend­inga upp­runa sinn að rekja til Pól­lands.

„Hags­munir land­anna fara saman í mik­il­vægum mála­flokk­um, svo sem örygg­is- og varna­mál­um. Þá hafa aukin sam­skipti land­anna, ekki síst vegna fjölda Pól­verja sem eru búsettir á Íslandi, eflt við­skipta- og menn­ing­ar­tengsl,“ segir í til­kynn­ingu utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins.

Full­gilt sendi­ráð Pól­lands á Íslandi frá 2013

Pólsk stjórn­völd hafa verið með sendi­skrif­stofu í Reykja­vík frá 2008, fyrst með aðal­ræð­is­skrif­stofu og síðan full­gilt sendi­ráð frá árinu 2013.

„Með opnun sendi­skrif­stofu Íslands í Var­sjá kemst loks á nauð­syn­leg gagn­kvæmni í stjórn­mála­sam­band ríkj­anna og það er ánægju­legt að geta stigið það skref og und­ir­strikað hversu verð­mæt vin­átta þjóð­anna er fyrir okkur Íslend­inga. Pólska sendi­ráðið í Reykja­vík hefur sinnt mik­il­vægri þjón­ustu við þann stóra hóp Pól­verja sem býr á Íslandi. Íslenskt sendi­ráð í Var­sjá getur að sama skapi veitt íslenskum rík­is­borg­urum og Pól­verjum með náin tengsl við Ísland þjón­ustu og um leið greitt götu íslenskra fyr­ir­tækja á þessum slóðum og gætt íslenskra hags­muna, til dæmis á vett­vangi Upp­bygg­ing­ar­sjóðs EES,“ er haft eftir Þór­dísi Kol­brúnu R. Gylfa­dóttur utan­rík­is­ráð­herra í til­kynn­ingu ráðu­neyt­is­ins.

Stofnun sendi­ráðs Íslands í Var­sjá var á meðal til­lagna sem lagðar voru til í skýrslu sem kom út síð­asta haust um sam­skipti Íslands og Pól­lands, en skýrslan byggði á vinnu starfs­hóps sem settur var á lagg­irnar í tíð Guð­laugs Þórs Þórð­ar­sonar sem utan­rík­is­ráð­herra.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent