Jón Bjarki Magnússon, sem starfað hefur sem blaðamaður á DV undanfarin misseri, hefur sagt upp störfum og tilkynnt yfirmönnum sínum það. Jón Bjarki hlaut blaðamannaverðlaun Blaðamannafélags Íslands fyrir rannsóknarblaðamennsku snemma á síðasta ári ásamt Jóhanni Páli Jóhannssyni fyrir umfjöllun þeirra um lekamálið. Jóhann Páll sagði upp störfum á mánudag.
Þeir bætast í hóp þeirra sem voru reknir í kjölfar yfirtöku nýrra eigenda DV, undir forystu Björns Inga Hrafnssonar, í desember. Björn Ingi réð þrjá nýja ritstjóra yfir DV, þau Eggert Skúlason, Kolbrúnu Bergþórsdóttur og Hörð Ægisson, sem verður viðskiptaritstjóri. Hallgrímur Thorsteinsson, sem hafði verið ritstjóri DV frá því í september var sagt upp því starfi og mun leiða stefnumótum á sviði talmálsútvarps á vegum Pressunnar. Hann ætlar að vinna upp uppsagnarfrest sinn og síðan hætta að starfa fyrir félagið.
Í facebook-færslu sem Jón Bjarki birti í dag segir:
„Í dag hætti ég störfum sem blaðamaður DV eftir rúmlega fimm ára starf fyrir fjölmiðilinn. Ég gæti auðvitað nefnt ýmsar ástæður, sem mörgum þykja kannski liggja í augum uppi, en ein þeirra er trúnaðarbrestur Björns Inga Hrafnssonar aðaleiganda og útgefanda DV gagnvart mér og skilaboð hans í vitna viðurvist um að ég ætti ekki eftir að fara vel út úr opinberri umræðu um málið. Ég óska fyrrum samstarfsfélögum mínum á blaðinu alls hins besta og veit að þar innandyra eru góðir blaðamenn sem munu ekki láta stýra sér af braut þeirrar hörðu rannsóknarblaðamennsku sem DV hefur ástundað."