Jón Gnarr, fyrrverandi borgarstjóri í Reykjavík, hefur verið ráðinn ritstjóri innlendrar dagskrár hjá fjölmiðlafyrirtækinu 365. Hann hefur þegar hafið störf hjá fyrirtækinu. Jón hefur skrifað pistla í Fréttablaðið undanfarna mánuði og mun halda því áfram.
„Við gætum ekki verið ánægðari með þessa ráðningu og vitum að Jón Gnarr mun reynast okkur mikill happafengur,“ segir Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri 365, í tilkynningu um ráðninguna. Hann segir að handbragð Jóns muni sjást í öllum miðlum fyrirtækisins strax í haust. „Ég er sannfærður um að viðskiptavinir okkar og landsmenn allir eiga eftir að njóta þessa í dagskránni okkar. Við hlökkum til að starfa með jafn skapandi og skemmtilegum manni og Jóni Gnarr.“
Jón Gnarr segist spenntur fyrir því að takast á við starfið, sem sé áhugavert og krefjandi. „Íslensk dagskrárgerð hefur verið ástríða mín alla tíð. Flest það sem ég hef gert í þeim efnum hef ég gert á miðlum 365; Stöð 2, X-inu og Fréttablaðinu. 365 er að mínu mati einn mest spennandi vinnustaður á Íslandi í dag. Ég þakka stjórnendum traustið og hlakka til að fá að leggja mín lóð á vogarskálarnar með því að móta vandaða innlenda dagskrárgerð til framtíðar með skemmtilegu samstarfsfólki.”