Jón Gnarr sigraði Þjóðskrá - Má bera ættarnafnið Gnarr

Jón Gnarr fær nú að heita Jón Gnarr.
Jón Gnarr fær nú að heita Jón Gnarr.
Auglýsing

Ákvörðun Þjóð­skrár Íslands um að synja beiðni Jóns Gnarr Krist­ins­sonar um að breyta kenni­nafni sínu í Jón Gnarr hefur verið felld úr gildi. Inn­an­rík­is­ráðu­neytið kvað upp úrskurð þess efnis á þriðju­dag. Því á Þjóð­skrá Íslands "skrá fullt nafn hans sem Jón Gnarr í þjóð­skrá". Þetta kemur fram í úrskurði ráðu­neyt­is­ins sem Kjarn­inn hefur undir hönd­um.

Jón, sem er fyrrum borg­ar­stjóri Reykja­vík­ur, lands­þekktur grínisti og núver­andi fram­kvæmda­stjóri dag­skrársviðs 365 miðla, var skírður Jón Gunnar Krist­ins­son. Hann hefur alla sína full­orð­ins­tíð kallað sig Jón Gnarr og hafði þegar fengið sam­þykkt að breyta milli­nafni sínu í Gnarr. Und­an­farið hefur hann hins vegar barist fyrir því að verða skráður með ætt­ar­nafnið Gnarr í þjóð­skrá.

Þjóð­skrá fékk málið fyrst til með­ferðar í ágúst 2014 og komst þá að þeirri nið­ur­stöðu að beiðni Jóns upp­fyllti ekki skil­yrði laga um manna­nafna­nefnd. Því mætti hann ekki taka upp ætt­ar­nafnið Gnarr sem nýtt ætt­ar­nafn og því var beiðn­inni hafn­að. Inn­an­rík­is­ráðu­neytið kemst að þeirri nið­ur­stöðu sinni að sú ákvörðun hafi verið rétt.

Auglýsing

Jón flutt­ist tíma­bundið til Texas í Banda­ríkj­unum fyrr á þessu ári. Í mars síð­ast­liðnum greindi Jón frá því að dóm­ari þar hafi sam­þykkt umsókn sína um að breyta nafni sínu í Jón Gnarr. " Þetta er mjög ein­falt og skýrt ferli og ekki flók­ið, öfug­snú­ið, nið­ur­lægj­andi og kjána­legt eins og heima." sagði Jón í stöðu­upp­færslu á Face­book af því til­efni.

Jón óskaði í kjöl­farið eftir því upp­taka hans á ætt­ar­nafn­inu Gnarr í Banda­ríkj­unum yrði skráð í þjóð­skrá hér­lend­is. Þjóð­skrá hafn­aði því og var mál­inu áfrýjað til inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins. Það úrskurð­aði á þriðju­dag að Þjóð­skrá Íslands ætti að skrá ætt­ar­nafnið Gnarr. Í úrskurð­inum seg­ir: "Ekki verður sú álýktun dregin að Þjóð­skrá Íslands sé óheim­ilt að leggja til grund­vallar erlendar stjórn­valds­á­kvarð­anir eða erlenda dóma um nafna­breyt­ing­ar. Sam­kvæmt meg­in­reglum íslensks réttar ber að við­ur­kenna erlendar stjórn­valds­á­kvarð­anir og erlenda dóma sem eru ákvarð­andi um per­sónu­lega stöðu manna nema þær séu í and­stöðu við grunn­reglur íslensks réttar eða alls­herj­ar­reglu en einnig ef rétt­ar- eða sið­ferð­is­vit­und almenn­ings hér á landi væri stór­lega mis­boðið með við­ur­kenn­ingu erlendrar úrlausn­ar.

Eins og máli þessu er háttað liggur það fyrir að JGK [Jón Gnarr Krist­ins­son] er íslenskur rík­is­borg­ari með skráð lög­heim­ili á Íslandi en var tíma­bundið búsettur í Banda­ríkj­unum þegar beiðni um nafn­breyt­ingu hans var sam­þykkt af þar­lendum dóm­stól­um. Af fyr­ir­liggj­andi gögnum verður ekki annað ráðið en að til nafn­breyt­ingar hafi komið í sam­ræmi við lög í því landi sem JGK var þá búsett­ur".

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None