Samkeppniseftirlitið: Icelandair nýtur forgangs og yfirvöld verða að breyta því

15610206252_f3bc8b2419_b.jpg
Auglýsing

Fyr­ir­komu­lag Isa­via á úthlutun afgreiðslu­tíma fyrir flug­fé­lög á Kefla­vík­ur­flug­velli hindrar sam­keppni og Icelandair nýtur sam­keppn­is­for­skots hjá Isa­via. Þetta kemur fram í nýju áliti Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins, sem vill að inn­an­rík­is­ráðu­neytið og Sam­göngu­stofa grípi til aðgerða vegna þessa. Almenn­ingur hafi hag af því að virk sam­keppni verði sett í for­gang.

Und­an­farin ár hafa keppi­nautar Icelandair ítrekað kvartað yfir því að Icelandair njóti sam­keppn­is­for­skots, þar sem félagið hafi fengið for­gang að afgreislu­tímum á flug­vell­inum milli 7 og 8 á morgn­anna og milli 16 og 17:30 síð­deg­is. „Rann­sókn Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins leiðir í ljós að afgreiðslu­tímar á þessum tíma­bilum eru sér­stak­lega mik­il­vægir flug­fé­lögum sem vilja koma á sam­keppni í tengiflug­i milli Evr­ópu og Norð­ur­-Am­er­íku, með Kefla­vík­ur­flug­völl sem tengi­stöð. Rann­sóknin leiðir enn­fremur í ljós að Icelandair hefur ekki aðeins for­gang að afgreiðslu­tímum sem félag­inu hefur verið úthlutað áður, heldur einnig nýjum afgreiðslu­tímum sem stafa af auk­inni afkasta­get­u,“ segir í áliti Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins.

Isa­via hefur mót­mælt þessum kvört­unum og er ósam­mála því að úthlutun afgreiðslu­tíma hafi skað­leg áhrif á sam­keppni. Það sé nóg af lausum afgreiðslu­tímum utan álags­tíma. „Þá bera sam­skipti við Sam­göngu­stofu með sér að stofn­unin hefur tak­mark­aðan skiln­ing á þeim sam­keppn­is­hindr­unum sem tengj­ast úthlutun á afgreiðslu­tímum á Kefla­vík­ur­flug­velli og Sam­keppn­is­eft­ir­litið hefur bent á um ára­bil. Hefur stofn­unin virt að vettugi til­mæli Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins um að fram­kvæma sam­keppn­is­mat við end­ur­skoðun á fyr­ir­komu­lagi við úthlutun á afgreiðslu­tím­um,“ segir í álit­inu.

Auglýsing

„Sam­keppni í áætl­un­ar­flugi til og frá land­inu hefur mikla þýð­ingu fyrir almenn­ing og atvinnu­starf­semi, ekki síst ferða­þjón­ustu. Þar sem sam­keppni hefur kom­ist á höfum við notið þess í lægri flug­far­gjöld­um. Kefla­vík­ur­flug­völlur er eina gátt okkar til og frá land­inu. Stjórn­völdum ber því skylda að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að tryggja að allir keppi­nautar sitji þar við sama borð,“ segir Páll Gunnar Páls­son, for­stjóri Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins, í til­kynn­ingu frá eft­ir­lit­inu.

Sam­keppn­is­eft­ir­litið beinir því til Ólafar Nor­dal inn­an­rík­is­ráð­herra að hún beiti sér fyrir því að „ráð­ist verði í aðgerðir til þess að draga úr sam­keppn­is­hömlum sem stafa af fyr­ir­komu­lagi við úthlutun afgreiðslu­tíma til flug­fé­laga á Kefla­vík­ur­flug­velli.“

Upp­bygg­ing Kefla­vík­ur­flug­vallar og flug­stöðv­ar­innar á næstu 25 árum gerir ráð fyrir að afkasta­geta vall­ar­ins muni tvö­fald­ast. Sam­keppn­is­eft­ir­litið segir að það séu sterkar vís­bend­ingar um að þess­ari aukn­ingu á afkasta­getu sé ætlað að mæta þörfum Icelanda­ir, en ekki minni keppi­nauta. „Þetta má m.a. ráða af þeirri afstöðu til sam­keppn­is­sjón­ar­miða sem birst hefur í svörum Isa­vi­a.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None