Búvörusamningur við bændur gengur fyrir tollasamningi við ESB

15270171582_ae01f5bebe_k-1.jpg
Auglýsing

Nýgerður samn­ingur við Evr­ópu­sam­bandið um nið­ur­fell­ingu ýmissa tolla verður ekki lagður fyrir Alþingi fyrr en búið er að ganga frá nýjum búvöru­samn­ingi við bænd­ur. Þetta stað­festir Gunnar Bragi Sveins­son utan­rík­is­ráð­herra við Bænda­blaðið.

Gunnar Bragi seg­ist hafa haft sam­ráð við Sig­urð Inga Jóhanns­son sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra og Bænda­sam­tökin um málið og í kjöl­far þess hafi hann ákveðið að leggja ekki fram tolla­samn­ing­inn á Alþingi strax. Það sé ein­fald­lega rétt að við svo „mik­il­væga samn­inga­gerð eins og búvöru­samn­inga hafi menn heild­ar­mynd­ina til lengri fram­tíðar uppi á borð­inu í sam­skiptum ríkis og land­bún­að­ar­ins“.

Gunnar Bragi segir við Bænda­blaðið að tolla­samn­ing­ur­inn við Evr­ópu­sam­bandið sé ásætt­an­leg­ur. „­Samn­ing­ur­inn veitir ákveðin tæki­færi fyrir land­búnað á Íslandi til að þreifa fyrir sér á mark­aði í Evr­ópu með nýjar vör­ur, eins og til dæmis í kjöti. Á sama tíma svarar samn­ing­ur­inn brýnni þörf fyrir auknar inn­flutn­ings­heim­ildir til ESB fyrir skyr en einnig fyrir lamba­kjöt. Hvað varðar heim­ildir ESB til inn­flutn­ings til Íslands tel ég að umfang þeirra sé ekki með þeim hætti að land­bún­að­ur­inn eigi að ótt­ast það. Íslenskur land­bún­aður er sterk­ari en svo. Auk þess er gert ráð fyrir ríf­legum aðlög­un­ar­tíma og mik­il­vægt að hlusta eftir áhyggjum og hug­myndum bænda.“

Auglýsing

Samn­ing­arnir við ESB fela í sér að Ísland fellir niður tolla á yfir 340 nýjum toll­skrár­núm­erum og lækkar tolla á yfir 20 öðrum, að því er fram kom í til­kynn­ingu frá ráðu­neyt­inu í síð­ustu viku. Auk þess er samið um að báðir aðilar auki veru­lega toll­frjálsa inn­flutn­ings­kvóta m.a. fyrir ýmsar kjöt­teg­undir og osta, sem munu koma til fram­kvæmda á til­teknum aðlög­un­ar­tíma. Lækkun vöru­verðs vegna samn­ing­anna getur numið tugum pró­senta.

Á móti fær Ísland veru­lega hækkun toll­frjálsra inn­flutn­ings­kvóta fyrir skyr, smjör og lamba­kjöt auk nýrra kvóta fyrir ali­fugla- og svína­kjöt og ost. Til að mynda fá íslenskir fram­leið­endur Skyrs að flytja út tíu sinnum meira en áður inn á mark­aði í Evr­ópu­sam­bands­lönd­um.

Íslenskir bændur eru margir ósáttir við samn­ing­ana um við­skipti með land­bún­að­ar­vör­ur. Jón Magnús Jóns­son, vara­for­maður Félags kjúklinga­bænda, sagð­i í sam­tali við Morg­un­blaðið í sept­em­ber að áhrif breyt­ing­anna geti orðið það mikil að inn­lendir fram­leið­endur neyð­ist til að bregða búi. Hann sagði samn­ing­inn „hálf­gerðar nátt­úru­ham­far­ir“ og seg­ist ekki vera viss um að íslenskir stjórn­mála­menn hafi vitað hvað þeir hafi verið að semja um. Í frétt blaðs­ins er einnig rætt við svína­bónda sem lýsti yfir sömu áhyggjum í sinni grein. Í frétt RÚV í sept­em­ber var haft eftir Sindra Sig­ur­geirs­syni, for­manni Bænda­sam­tak­anna, að samn­ing­ur­inn hafi verið gerður án sam­ráðs við bænd­ur.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None