„Kæri bæjarstjóri/kóngur”

Börn í Kirkjubæjarskóla vilja ruslatunnur, endurbættar vatnslagnir, nýrra nammi í búðina og Hopp-rafskútur. Þá vilja þau gjarnan geta komist í bíó. Sveitarstjórn Skaftárhrepps tók erindi þeirra og ábendingar til umfjöllunar á fundi sínum.

Kirkjubæjarskóli.
Kirkjubæjarskóli.
Auglýsing

„Kæri bæj­ar­stjóri/­kóng­ur. Getur klaustur haft bíó? Það væri svo skemmti­legt, gerðu það. Kveðja, Gabríel Fann­ar, 6. bekk.“

Gabríel Fannar er Una­son og sendi bréf um þetta mál til sveit­ar­stjóra Skaft­ár­hrepps nýver­ið. Hann var ekki eini grunn­skóla­nem­inn sem ákvað að skrifa sveit­ar­stjór­anum því auk erindis hans var bréf frá nem­endum í 8.-10. bekk í Kirkju­bæj­ar­skóla tekið fyrir á síð­asta fundi sveit­ar­stjórn­ar.

Auglýsing

Því það er ekki aðeins afþrey­ing á borð við bíó sem brennur á unga fólk­inu í Skaft­ár­hreppi. Þeim er annt um nátt­úr­una, vilja veg­bæt­ur, Hopp-raf­skútur og fleiri leik­tæki.

Hér eru ábend­ingar nem­enda 8.- 10. bekkjar sem lagðar voru fyrir sveit­ar­stjórn á fundi hennar 19. októ­ber:

Bréf Gabríels Fannars til sveitarstjórans.

„Við viljum fá rusla­tunnur aftur á bæina og á Klaustur því ef það eru ekki rusla­tunnur þá eru meiri líkur á að fólk hendi rusli í nátt­úr­una,“ er það fyrsta sem unga fólkið setur á blað. Og vatns­málin eru þeim einnig hug­leik­in. „Skipta um vatns­lagnir í skól­anum því vatnið þarf að renna í ca 30 mín til að kólna en er oft brúnt á lit­inn og vont bragð af því“.

Svo vilja þau að fram­kvæmdir við skól­ann verði klárað­ar. „Klára skól­ann að utan (ekk­ert búið að vinna við það lengi) og fylla í hol­una hjá mötu­neyt­in­u.“

Skóla­lóðin er þeim einnig ofar­lega í huga. „Það vantar leik­tæki sem henta okkar ald­urs­hóp eins og köngu­ló­ar­rólu, apar­ólu og úti körfu­bolta­völl.“

Hopp-hjól eru nú komin til Vestmannaeyja og ungt fók á Klaustri vill gjarnan fá slík hjól. Mynd: Hopp-Vestmannaeyjum

Versl­anir fá svo létt á bauk­inn frá börn­un­um. „Það er mjög dýrt að búa úti á landi svo það er dýrt að versla í búð­inn­i,“ skrifa þau. Og úrvalið er of lítið að þeirra mati og „oft gam­alt nammi í sjopp­unn­i.“

Til að kom­ast um Kirkju­bæj­ar­klaustur vilja krakk­arnir svo gjarnan fá aðgang að raf­skútum og „Hopp-hlaupa­hjól“ eru á óska­list­an­um.

En þau taka líka fyrir alvar­legri mál sem snerta öryggi borg­ar­anna. „Það þarf nauð­syn­lega að hefla Með­al­lands­veg­inn oftar því hann er hættu­legur og fer illa með bíl­ana,“ skrifa þau. „Við skorum á þig að fá þér bíltúr og prófa að keyra hann sjálf­ur,“ bæta þau við og beina þar orðum sínum til sveit­ar­stjór­ans, Ein­ars Krist­jáns Jóns­son­ar, sem þau kveðja með fal­legum hvatn­ing­ar­orðum og hlýjum óskum um hið nýja starf: „Vertu ann­ars vel­kom­inn í sveit­ina okkar og von­andi muntu kunna vel við þig.“

Undir bréfið skrifa Amelía Íris, Ásgeir Örn, Bríet Sunna, Garð­ar, Iðunn, Júl­ía, Frið­rik, Vil­helm Logi, Dan­í­el, Sverrir Máni, Ásgeir Mar­inó og Ólöf Ósk.

Auglýsing

Sveit­ar­stjórnin fjall­aði um bæði erindin á fundi sínum nú í októ­ber. Hún þakk­aði Gabríel Fann­ari fyrir að vekja athygli á kvik­mynda­mál­unum og sam­þykkti sam­hljóða að vísa því til menn­ing­ar­mála­nefndar sveit­ar­fé­lags­ins „með ósk um að nefndin athugi þann mögu­leika að hafa kvik­mynda­sýn­ingar á Kirkju­bæj­ar­klaustri í sam­vinnu við stóru kvik­mynda­húsin á höf­uð­borg­ar­svæð­in­u“.

Bréf nem­enda 8.-10. bekkjar var einnig lagt fram til kynn­ingar og þakkar sveit­ar­stjórn þeim ábend­ing­arn­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent