Kaldbakur, KEA og lífeyrissjóðir á meðal nýrra eigenda Íslenskra Verðbréfa

sig--or-jonsson.jpg
Auglýsing

Hóp­ur­inn sem gengið hefur frá kaupum á 90 pró­sent hlut í Íslenskum verð­bréfum hf. hefur verið gerður opin­ber. Í honum er m.a. ­Ursus Maritimus Investors sem er félag í eigu Sig­urðar Arn­gríms­son­ar, Kald­bakur ehf. sem er fjár­fest­inga­fé­lag Sam­herja, Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna Akur­eyr­ar­bæj­ar, KEA svf., Stapi líf­eyr­is­sjóð­ur, Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna sveit­ar­fé­laga, Festa líf­eyr­is­sjóð­ur, Líf­eyr­is­sjóður Vest­manna­eyja, Kjálka­nes ehf. og Salvus ehf. í eigu Sig­þórs Jóns­sonar fram­kvæmda­stjóra ÍV.  Það er Kvika, sem áður hét MP Straum­ur, sem selur hlut­inn. Félag í eigu þess, íslensk eigna­stýr­ing ehf., mun áfram halda 9,99 pró­sent hlut sem það hyggst selja í náinni fram­tíð. Kaup­verðið er ekki gefið upp og sagt vera trún­að­ar­mál.

Greint var frá því í fjöl­miðlum á þriðju­dag að salan stæði fyrir dyr­um.

Sig­þór segir að það felist mikil við­ur­kenn­ing fyrir starfs­menn í nýju eign­ar­hald­i. „Nýtt eign­ar­hald gefur félag­inu ýmis tæki­færi og gerir því kleift að sækja kröft­ug­lega fram á næstu miss­er­um. Íslensk verð­bréf munu taka virkan þátt í íslensku atvinnu­lífi með víð­tæk­ari þjón­ustu við við­skipta­vini félags­ins. Styrkur ÍV felst meðal ann­ars í langri og góðri rekstr­ar­sögu ásamt því góða orð­spori og sér­stöðu sem félagið hefur skapað sér á löngu tíma­bil­i.“

Auglýsing

Átök um eign­ar­haldið og sam­ein­ingu



Nokkur átök áttu sér stað um eign­ar­haldið á Íslenskum verð­bréfum í lok síð­asta árs, sem Kjarn­inn greindi ítar­lega frá. MP banki, Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna (LI­VE) og félag í eigu Garð­ars K. Vil­hjálms­sonar gerðu til­boð í 27,5 pró­sent hlut Íslands­banka í Íslenskum verð­bréfum í októ­ber í fyrra. Föstu­dag­inn 24. októ­ber var ákveðið að taka til­boð­inu en þann sama dag bár­ust til­boðs­gjöf­unum upp­lýs­ingar um að Straumur hefði lagt inn til­boð í hlut­inn þegar allt stefndi í að kaupin myndu ganga í gegn. Þær upp­lýs­ing­ar, sem voru byggðar á orðrómi á fjár­mála­mark­aðn­um, reynd­ust ekki rétt­ar. Straumur gerði aldrei til­boð í hlut­inn.

Hins vegar keypti bank­inn 64,3 pró­sent hlut Sæv­ars Helga­sonar og Ásgeirs Ásgeirs­son­ar, í gegnum félagið Gunner ehf., í Íslenskri eigna­stýr­ingu ehf., sem átti þá 21,83 pró­sent hlut í Íslenskum verð­bréf­um. Straumi bauðst síðan að ganga inn í til­boð í aðra hluti í Íslenskum verð­bréfum á grund­velli for­kaups­rétt­ar­á­kvæð­is. Þar á meðal var 27,5 pró­sent hlutur Íslands­banka sem MP banki (10 pró­sent), LIVE (10 pró­sent) og Garðar Vil­hjálms­son (7,5 pró­sent) til­kynntu um kaup á í októ­ber. Í lok des­em­ber í fyrra hafði Íslensk eigna­stýr­ing eign­ast 58,14% hlut.

Í tengslum við þessar vend­ingar var vöngum velt yfir sam­ein­ingu MP banka, Straums og Íslenskra verð­bréfa. Af því varð ekki en í febr­úar á þessu ári var svo greint frá því að milli MP banka og Straums hefði náðst sam­komu­lag um sam­runa bank­anna. Þeir sam­ein­uð­ust svo form­lega í júní og breyttu nafni sínu nýverið í Kviku.

Starfað í tæpa þrjá ára­tugi



Ís­lensk verð­bréf eru sér­hæft eigna­stýr­ing­ar­fyr­ir­tæki sem var stofnað árið 1987 og hvílir því á traustum grunni. Félagið hefur verið aðili að Kaup­höll Íslands frá árinu 1995 og hefur starfs­leyfi sem verð­bréfa­fyr­ir­tæki.  Félagið veitir alhliða þjón­ustu á sviði eigna­stýr­ingar og mark­aðsvið­skipta auk rekst­urs fram­taks­sjóða og sér­hæfðra fjár­fest­inga.

Dótt­ur­fé­lag Íslenskra verð­bréfa er ÍV sjóðir hf., og á félagið einnig 45,5 pró­sent eign­ar­hlut í Tplús ehf.  Starfs­menn eru 19 og búa þeir yfir mik­illi reynslu og þekk­ingu á verð­bréfa­mark­aði sam­fara fjöl­breyttri mennt­un.  Eignir í stýr­ingu hjá Íslenskum verð­bréfum eru um 111 millj­arðar króna og alls eru rúm­lega tvö þús­und ein­stak­lingar og lög­að­ilar með fjár­muni í eigna­stýr­ingu og vörslu hjá félag­inu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None