Kári Gautason og Iðunn Garðarsdóttir hafa verið ráðin sem aðstoðarmenn Svandísar Svavarsdóttur sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Kári hefur störf 10. janúar, en Iðunn hefur þegar hafið störf og fylgdi ráðherra úr heilbrigðisráðuneytinu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ráðuneytinu í dag.
Kári Gautason er fæddur á Akureyri árið 1989 og ólst upp á Grænalæk í Vopnafirði. Hann er stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri. Hann lauk BS prófi í búvísindum frá Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri árið 2013, og meistaragráðu í búvísindum með áherslu á erfðafræði frá Árósaháskóla árið 2017.
Kári starfaði sem bóndi árin 2013 til 2015, sem ráðunautur í loðdýrarækt í hlutastarfi 2013 til 2017 og var framkvæmdastjóri þingflokks VG árin 2018-2020. Seinast starfaði Kári sem sérfræðingur og staðgengill framkvæmdastjóra hjá Bændasamtökum Íslands og sem stjórnarmaður í stjórn Byggðastofnunar. Hann lætur nú af þeim störfum til að gerast aðstoðarmaður ráðherra. Kári er einnig annar varaþingmaður VG í Norðausturkjördæmi.
Iðunn Garðarsdóttir var aðstoðarmaður Svandísar sem heilbrigðisráðherra frá árinu 2017 og fylgir Svandísi nú sem áður segir í nýtt ráðuneyti. Iðunn er fædd í Reykjavík árið 1989. Hún er stúdent frá Menntaskólanum við Hamrahlið, lauk BA prófi í íslensku frá Háskóla Íslands árið 2013, BA prófi í lögfræði frá sama skóla árið 2015 og meistaraprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands vorið 2017. Iðunn starfaði sem lögfræðingur hjá lögmannsstofunni Juris áður en hún hóf störf í heilbrigðisráðuneytinu.
Iðunn var virk í starfi Röskvu innan Háskóla Íslands, var formaður félagsins árin 2012-2013 og sat í Stúdentaráði og Háskólaráði fyrir hönd fylkingarinnar. Hún situr í málnefnd Háskóla Íslands.