Kári og Iðunn verða aðstoðarmenn Svandísar

Svandís Svavarsdóttir sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur ráðið þau Kára Gautason og Iðunni Garðarsdóttur sem aðstoðarmenn.

Iðunn Garðarsdóttir og Kári Gautason verða aðstoðarmenn Svandísar Svavarsdóttur í atvinnuvegaráðuneytinu.
Iðunn Garðarsdóttir og Kári Gautason verða aðstoðarmenn Svandísar Svavarsdóttur í atvinnuvegaráðuneytinu.
Auglýsing

Kári Gauta­son og Iðunn Garð­ars­dóttir hafa verið ráðin sem aðstoð­ar­menn Svan­dísar Svav­ars­dóttur sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra. Kári hefur störf 10. jan­ú­ar, en Iðunn hefur þegar hafið störf og fylgdi ráð­herra úr heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá ráðu­neyt­inu í dag.

Kári Gauta­son er fæddur á Akur­eyri árið 1989 og ólst upp á Græna­læk í Vopna­firði. Hann er stúd­ent frá Mennta­skól­anum á Akur­eyri. Hann lauk BS prófi í búvís­indum frá Land­bún­að­ar­há­skól­anum á Hvann­eyri árið 2013, og meistara­gráðu í búvís­indum með áherslu á erfða­fræði frá Árósa­há­skóla árið 2017.

Kári starf­aði sem bóndi árin 2013 til 2015, sem ráðu­nautur í loð­dýra­rækt í hluta­starfi 2013 til 2017 og var fram­kvæmda­stjóri þing­flokks VG árin 2018-2020. Sein­ast starf­aði Kári sem sér­fræð­ingur og stað­geng­ill fram­kvæmda­stjóra hjá Bænda­sam­tökum Íslands og sem stjórn­ar­maður í stjórn Byggða­stofn­un­ar. Hann lætur nú af þeim störfum til að ger­ast aðstoð­ar­maður ráð­herra. Kári er einnig annar vara­þing­maður VG í Norð­aust­ur­kjör­dæmi.

Auglýsing

Iðunn Garð­ars­dóttir var aðstoð­ar­maður Svan­dísar sem heil­brigð­is­ráð­herra frá árinu 2017 og fylgir Svandísi nú sem áður segir í nýtt ráðu­neyti. Iðunn er fædd í Reykja­vík árið 1989. Hún er stúd­ent frá Mennta­skól­anum við Hamra­hlið, lauk BA prófi í íslensku frá Háskóla Íslands árið 2013, BA prófi í lög­fræði frá sama skóla árið 2015 og meist­ara­prófi í lög­fræði frá Háskóla Íslands vorið 2017. Iðunn starf­aði sem lög­fræð­ingur hjá lög­manns­stof­unni Juris áður en hún hóf störf í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu.

Iðunn var virk í starfi Röskvu innan Háskóla Íslands, var for­maður félags­ins árin 2012-2013 og sat í Stúd­enta­ráði og Háskóla­ráði fyrir hönd fylk­ing­ar­inn­ar. Hún situr í mál­nefnd Háskóla Íslands.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent