Kaupþing hafnar ásökunum Tchenguiz sem vill 430 milljarða

000-DV1177607-1.jpg
Auglýsing

Slita­stjórn Kaup­þings og Jóhannes Rúnar Jóhanns­son, sem situr í henni, hafna ásök­unum sem Vincent Tchenguiz hefur borið á þá og segja þær með öllu hald­laus­ar. Vincent Tchenguiz til­kynnti í gær að hann hefði höfðað mál gegn slita­búi Kaup­þings, Jóhann­esi Rún­ari, breska end­ur­skoð­un­ar­fyr­ir­tæk­inu Grant Thornton og tveimur strafs­mönnum þess vegna tjóns sem hann hefði orðið fyrir þegar efna­hags­brota­deild bresku lög­regl­unn­ar, Ser­ious Fraud Office (SFO), rann­sak­aði lán­veit­ingar til hans og bróður hans, Robert Tchengu­iz,­sem var stærsti skuld­ari Kaup­þings við fall bank­ans. Vincent Tchenguiz fer fram á 2,2 millj­arða punda, um 430 millj­arða króna, í skaða­bætur vegna þess tjóns. Málið verður höfðað fyrir breskum dóm­stól­um.

Í til­kynn­ingu á heima­síðu slita­bús Kaup­þings kemur fram að þrátt fyrir að upp­lýs­ingar um máls­höfð­un­ina hafi verið sendar fjöl­miðlum hafi hvorki Kaup­þing né Jóhannes Rúnar fengið upp­lýs­ingar eða gögn um kröf­urnar og því sé þeim ómögu­legt að taka afstöðu til máls­ins í smá­at­rið­um. „Það er ekki stefna Kaup­þings að fjalla um ein­stök við­skipta­tengd mál­efni en þó má segja að þær ásak­anir sem hafa komið fram á hendur Kaup­þingi og Jóhann­esi Rún­ari Jóhanns­syni hrl. eru með öllu hald­laus­ar“.

Jóhannes Rúnar Jóhannsson, sem situr í slitastjórn Kaupþings. Jóhannes Rúnar Jóhanns­son, sem situr í slita­stjórn Kaup­þings.

Auglýsing

Sagði Kaup­þing hafa hótað sér



Vincent Tchenguiz var hand­tek­inn í aðgerð SFO í mars 2011 vegna við­skipta félaga sem hann stýrir við Kaup­þing. Robert bróðir hann var líka hand­tek­inn í tengslum við sömu rann­sókn. Í við­tali við grein­ar­höf­und, sem birt­ist í Frétta­blað­inu 21. júli 2012, sagði Tchenguiz að Kaup­þing hefði hótað sér í aðdrag­anda hand­tök­unnar með því að segja að það væri „aðrar leið­ir“ til að ná hon­um. Hann útskýrði ekki nánar hvaða leiðir það ættu að vera né vildi hann til­greina hver hefði lagt fram þessar hót­an­ir. Þar sagð­ist hann einnig telja að gögnin sem rann­sókn SFO hefði byggst á hafi, að minnsta kosti að hluta til, komið frá ráð­gjafa Kaup­þings, Grant Thornt­on.

Rann­sókn SFO á Tchenguiz var hætt í júní 2011. Tchengu­iz-bræð­urnir höfð­uðu í kjöl­farið mál á hendur SFO og kröfð­ust um 200 millj­óna króna, tæp­lega 1,4 millj­arða króna, í skaða­bætur vegna rann­sókn­ar­inn­ar. Þeir komust síðar að sam­komu­lagi um bæt­ur. Ekki hefur verið upp­lýst frekar um inni­hald þess sam­komu­lags.

Það er fjarri því eina sam­komu­lagið sem Vincent Tchenguiz hefur gert á und­an­förnum árum. Í sept­em­ber 2011 var greint frá því að hann hefði náð sam­komu­lagi við slitabú Kaup­þings um að falla frá öllum kröfum sínum á hendur þrota­bú­inu. Við það féllu fjöl­mörg einka­mál sem hann rak gegn búinu í Bret­landi og Íslandi nið­ur, í þeim hafði sjóður í eigu Tchengu­iz-­fjöl­skyld­unnar metið kröfur sínar á hendur Kaup­þingi á um 1,5 millj­arða punda, um 290 millj­arða króna. Kaup­þing hafn­aði öllum kröfum þeirra í búið. Í við­tal­inu frá því í júlí 2012 sagði Tchenguiz að hann mætti ekki tala neitt um inni­hald sam­komu­lags­ins, hann mætti ekki tala um hversu mikið hann teldi að Kaup­þing hefði kostað sig né hvað sam­komu­lagið fól í sér fyrir Kaup­þing.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None