Kjarasamningar og óvissa valda versnandi kjörum íbúðalána

--slandsbanki-8-715x480.jpg
Auglýsing

Íslands­banki og Lands­bank­inn hafa hækkað vexti á föstum óverð­tryggðum íbúða­lánum til þriggja og fimm ára. Vaxta­tafla Íslands­banka breytt­ist í dag og er ástæðan hækkun ávöxt­un­ar­kröfu á mark­aði og hækk­andi fjár­magns­kostn­aður bank­ans vegna þessa, sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Íslands­banka. Hækk­unin nemur 0,3 pró­sentu­stigum á óverð­tryggðum lánum til þriggja ára og 0,4 pró­sentu­stigum á lánum til fimm ára.

Hjá Lands­bank­anum hækk­uðu vextir á sam­bæri­legum lánum þann 21. maí síð­ast­lið­inn. Hækk­unin er 0,3 pró­sent­ur. Spurður um ástæður hækk­ana bendir Krist­ján Krist­jáns­son, upp­lýs­inga­full­trúi bank­ans, á að vextir hafi hækkað á skulda­bréfa­mark­aði og fjár­mögnun því orðin dýr­ari fyrir bank­ann. Þá sé óvissa um áhrif kjara­samn­inga og ríf­legra launa­krafna auk þess sem óvissa ríki vegna afnáms gjald­eyr­is­hafta. Á fjár­mála­mörk­uðum séu und­ir­liggj­andi vænt­ingar um aukna verð­bólgu.

Auglýsing


Arion banki hefur ekki tekið ákvörðun um hækkun á útláns­vöxtum en bank­inn fylgist með þró­un­inni, að sögn Har­alds Guðna Eiðs­son­ar, upp­lýs­inga­full­trúa bank­ans.

Kjara­samn­ingar und­ir­rit­aðir

Síð­asta föstu­dag var skrifað undir kjara­samn­inga sem ná til alls um 65 til 70 þús­und laun­þega. Sam­tök atvinnu­lífs­ins hafa und­an­farnar vikur og mán­uði varað við áhrifum launa­hækk­ana og verð­bólgu sem þeim fylg­ir. Seðla­bank­inn hefur talað á svip­uðum nót­um. Í kjöl­far und­ir­rit­unar kjara­samn­inga á föstu­dag var haft eftir Má Guð­munds­syni seðla­banka­stjóra að líkur á vax­andi verð­bólgu séu veru­legar og hækk­andi álag á rík­is­skulda­bréfa­mark­aði sýni það.



Versn­andi kjör á íbúða­lánum eru ein birt­ing­ar­mynd vax­andi verð­bólgu. Hún mæld­ist 1,6 pró­sent í maí og var undir 2,5 pró­sent verð­bólgu­mark­miði Seðla­bank­ans, 16. mán­uð­inn í röð. Grein­ing­ar­deildir bank­anna spá allar auk­inni verð­bólgu á kom­andi mán­uð­um. Þannig spáir grein­ing­ar­deild Lands­bank­ans því að verð­bólga geti orðið allt að 4,5 pró­sent að með­al­tali á næstu þremur árum.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None