Kjarasamningar milli VR, Flóabandalagsins, StéttVest og LÍV annars vegar og Samtaka atvinnulífsins hins vegar hafa verið undirritaðir. Eins og venja er þegar kjarasamningar nást hefur verið hafist handa við vöfflubakstur í húsnæði ríkissáttasemjara.
Trúnaðarráð og stjórn VR samþykkti samninginn einhljóða á fundi sínum í morgun. Nú verða samningarnir lagðir í dóm félagsmanna allra stéttarfélaganna.