Susan Wojciki er forstjóri Youtube, og þar með einn af mikilvægustu stjórnendum Google, sem er eigandi myndbandsmiðilsins risavaxna. Hún hefur starfað lengi fyrir Google, var starfsmaður númer 16 hjá fyrirtækinu sem var stofnað 1998. Hún var áður yfirmaður á helsta tekjusviði Google (Google ads and commerce) en færði sig til Youtube í febrúar á þessu ári.
Wojciki var í tólfta sæti á lista Forbes yfir valdamestu konur heims í fyrra. Hún er 46 ára gömul fjögurra barna móðir, og þykir á meðal mögnuðustu kvennfyrirmynda í bandarísku viðskiptalífi.